Glamour

Nike og H&M eru verðmætustu fatafyrirtækin

Ritstjórn skrifar
Nike heldur sæti sínu efst á listanum.
Nike heldur sæti sínu efst á listanum. Mynd/Getty
Á hverju ári gerir fyrirtækið Brand Finance lista yfir verðmætustu vörumerki heims í hverjum flokki fyrir sig. Nú er nýbúið að opinbera listann fyrir árið 2017. Þegar raðað er á listann þá er bæði horft á sölutölur og markaðhlutdeild sem og aðra þætti eins og styrki vörumerkisins á öðrum sviðum. 

Nike heldur efsta sætinu frá því í fyrra. H&M og Zara fylgja svo fast á hæla íþróttavöruframleiðandans, sem ætti ekki að koma neinum á óvart. Zara hirti þriðja sætið af Louis Vuitton.

Louis Vuitton er þó verðmætasta lúxus vörumerkið og Hermés kemur þar beint á eftir. Gucci fór upp um þrjú sæti á milli ára, eða úr því 12. upp í 9. sætið. Burberry og Michael Kors duttu þó bæði niður. 

Stærsta stökkið tók þó Marc Jacobs. Verðmæti merkisins hækkaði um 85% og þetta árið er hann í 47 sæti. 

Hér fyrir neðan eru tíu verðmætustu vörumerkin:

1. Nike

2. H&M

3. Zara

4. Louis Vuitton

5. Adidas

6. Uniqlo

7. Hermés

8. Rolex

9. Gucci

10. Cartier






×