Sport

Nielsen og Aldís stóðu uppi sem sigurvegarar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nielsen og Aldís urðu hlutskörpust.
Nielsen og Aldís urðu hlutskörpust. mynd/sportmyndir.is/pétur stephensen
Borðtennismót WOW Reykjavik International Games fór fram í TBR húsinu við Gnoðarvog í gær. Keppt var í karla- og kvennaflokki þar sem allt besta borðtennisfólk landsins lék ásamt gestum frá Svíþjóð, Grænlandi, Ungverjalandi og Póllandi.

Í undanúrslitum í karlaflokki lék Magnús Kristinn Magnússon, Víkingi, gegn Karl Magnus Pohjolainen frá Svíþjóð. Sá síðarnefndi sigraði  4–0 (11-5, 11-7, 11-8 og 11-8) eftir fjöruga leiki.

Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Ivik Nielsen frá Grænlandi og Magnús Gauti Úlfarsson, BH. Nielsen hafði betur, 4-0 (11-8, 11-4, 11-6, 11-8). Hann vann svo Magnus Karl í úrslitaleiknum, 4–2 (11–7, 11–9, 7–11, 7–11, 7-11 og 4-11).

Í undanúrslitum í kvennaflokki mætti Aldís Rún Lárusdóttir, KR, Stellu Kristjánsdóttur, Víkingi. Aldís vann örugglega, 4–0 (11-5, 11-7,11-4, 11-9). Í hinum undanúrslitaleiknum lék Kolfinna Bjarnadóttir, HK, gegn Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur, KR.  Kolfinna vann 4–2 eftir hörkuleiki (8-11, 11–5, 11-6, 7 – 11, 11-8 og 11-4).

Aldís Rún vann svo öruggan sigur á Kolfinnu í úrslitaleiknum, 4–0 (11-9, 11-9, 11-4 og 11-5).

Úrslit mótsins:

Einliðaleikur karla:

1. Ivik Nielsen Grænland

2. Karl Magnus Pohjolainen Svíþjóð

3-4.  Magnús Kristinn Magnússon Víkingur

3-4.  Magnús Gauti Úlfarsson BH

Einliðaleikur kvenna:

1. Aldís Rún Lárusdóttir KR

2. Kolfinna Bjarnadóttir HK

3-4.  Stella Kristjánsdóttir Víkingur

3-4.  Auður Tinna Aðalbjarnardóttir KR

Ivik Nielsen sigraði Karl Magnus Pohjolainen í úrslitum í karlaflokki.mynd/sportmyndir.is/pétur stephensen
Aldís Rún vann öruggan sigur í úrslitum í kvennaflokki.mynd/sportmyndir.is/pétur stephensen



Fleiri fréttir

Sjá meira


×