Innlent

Niðurstöður úr rannsóknum á lífsýnum farnar að berast lögreglunni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi var leiddur fyrir dómara á fimmtudag.
Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi var leiddur fyrir dómara á fimmtudag. Vísir/GVA
Niðurstöður úr rannsóknum á lífsýnum sem send voru erlendis vegna rannsóknarinnar á máli Birnu Brjánsdóttur eru teknar að berast lögreglu hér á landi. Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni, í samtali við Vísi.

Hann vill þó ekkert fara út í það hvað niðurstöðurnar sýna, hvorki um hvers konar sýni var að ræða né hvað kom út úr því, en lögreglan á enn eftir að fá niðurstöður úr fleiri lífsýnum sem send voru út.

Lífsýnin voru meðal annars tekin úr grænlenska togaranum Polar Nanoq en hinir grunuðu í málinu eru skipverjar á togaranum. Áður hefur verið greint frá því að blóð úr Birnu fannst í rauðum Kia Rio-bíl sem annar skipverjinn hafði á leigu þegar Birna hvarf.

Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Birnu var seinast yfirheyrður á miðvikudaginn í liðinni viku.

Grímur segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvenær hann verði yfirheyrður næst en maðurinn var úrskurðaður í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald og einangrun síðastliðinn fimmtudag. Sá úrskurður var  kærður til Hæstaréttar sem enn á eftir að kveða upp sinn dóm en maðurinn hefur núna verið í haldi í á fimmtu viku.

Lögreglan bíður enn eftir lokaniðurstöðu krufningar á líki Birnu og þá er staðan enn þannig að engin játning liggur fyrir í málinu. Grímur vill að öðru leyti ekki fara út í það sem fram hefur komið við yfirheyrslur.

Auk mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi hefur annar skipverji af Polar Nanoq stöðu sakbornings í málinu. Hann var í einangrun í tvær vikur en var svo sleppt. Ekki var krafist farbanns yfir honum og er hann því nú kominn heim til sín á Grænlandi.

Lík Birnu fannst í fjörunni við Selvogsvita þann 22. janúar síðastliðinn en hennar hafði þá verið saknað í átta daga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×