Skoðun

Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu – svör flokkanna lofa góðu

Hrund Þrándardóttir skrifar
Fyrir síðustu alþingiskosningar sendi Sálfræðingafélag Íslands fyrirspurn til stjórnmálaflokka um stefnu þeirra í geðheilbrigðismálum. Eins og fram kom í fyrirspurninni tilgreina lög um réttindi sjúklinga rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita.

Samkvæmt klínískum leiðbeiningum á gagnreynd sálfræðimeðferð (sú meðferð sem hefur í rannsóknum sýnt mestan árangur) að vera fyrsti meðferðarkostur við kvíða, þunglyndi og fleiru. Þrátt fyrir það er slík meðferð ekki raunhæfur valkostur fyrir nema hluta almennings þar sem hún er a) í mjög litlum mæli í boði innan heilsugæslunnar og b) ekki niðurgreidd af Sjúkratryggingum. Utan sjúkrahúsa, þar sem biðlistar eru langir eftir meðferð, er hún því fyrst og fremst í boði á starfsstofum sjálfstætt starfandi sálfræðinga, óniðurgreidd, ólíkt annarri heilbrigðisþjónustu.

Síðan var spurt: Hvernig hyggst flokkurinn beita sér í því að laga það ósamræmi sem þarna blasir við? Skáletruð svör við spurningu b eru tekin beint upp úr svörum flokka.

Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér í því að sjúkratryggingar komi að niðurgreiðslu sálfræðimeðferðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjónusta sálfræðinga eigi að vera niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands. Píratar sögðust aðhyllast vísindalegar aðferðir og ákvarðanir byggðar á gögnum?… Bestu aðferðirnar eiga að sjálfsögðu að fá forgang, það er hagkvæmasta leiðin til lengri tíma. Samfylkingin telur eðlilegt að þjónusta sálfræðinga sé niðurgreidd með sambærilegum hætti og þjónusta annarra sérfræðinga innan heilbrigðiskerfisins.

Vinstri grænir vilja gera sálfræðiþjónustu hluta af almenna heilbrigðiskerfinu og brýnt sé að vinna að úrbótum í geðheilbrigðismálum á næstu árum. Við teljum þessa stefnu fela í sér að sálfræðiþjónusta verði studd af Sjúkratryggingum Íslands. Björt framtíð telur mikilvægt að greiðsluþátttaka sé til samræmis við aðra heilbrigðisþjónustu.

Þessi svör hljóma ljómandi vel og góður samhljómur milli flokkanna ætti að létta verkið. Sálfræðingafélag Íslands er tilbúið til að aðstoða við að koma málunum í betra horf. Góðar fyrirmyndir eru til erlendis frá og í smærri verkefnum hérlendis. Aðgengi að bestu meðferð við kvíða og þunglyndi og öðrum vanda er réttindamál fyrir almenning sem á að geta sótt sér þá meðferð sem sýnt hefur bestan árangur, óháð efnahag.

Nú er mjög í umræðunni aukinn kvíði meðal barna og unglinga og að ekkert dregur úr örorku af völdum geðræns vanda milli ára. Við skulum ekki sitja hjá heldur taka höndum saman og bregðast við með aðferðum sem virka.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×