Formúla 1

Nico Rosberg vann í Japan | Mercedes heimsmeistarar bílasmiða

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg sigldi lygnan sjó í keppni dagsins.
Nico Rosberg sigldi lygnan sjó í keppni dagsins. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í japanska kappakstrinum. Max Verstappen á Red Bull varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji.

Mercedes liðið tryggði sér þriðja heimsmeistaratitil bílasmiða í röð í dag. Rosberg jók forskot sitt á Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna í 33 stig. Það dugar því Hamilton ekki lengur að vinna þær fjórar keppnir sem eftir eru.

Hamilton klúðraði enn einni ræsingunni, hann tapaði sex sætum fyrir fyrstu beygju. Hamilton spólaði næstum því bara á staðnum.

Kimi Raikkonen var færður aftur um fimm sæti á ráslínu, frá þriðja í það áttunda. Ferrari liðið setti nýjan gírkassa í bíl hans eftir tímatökuna. Jenson Button á McLaren var einnig færður aftur um finn sæti frá 17. í 22. eða síðasta sætið á ráslínunni.

Ræsingin var vendipunktur í keppninni. Brautin var blaut þeim megin sem ökumenn í sætum með sléttri tölu ræstu af stað. Hamilton féll niður í áttunda sæti á leiðinni inn í fyrstu beygju. Sergio Perez á Force India tróð sér upp í þriðja sætið í ræsingunni. Vettel var fljótur að stela þriðja sætinu af Perez.

Rosberg sigldi fullkomlega auðan sjó fremstur í keppninni á meðan liðsfélagi hans, Hamilton var að berjast um sjöunda sætið við Raikkonen.

Hamilton þurfti að berjast talsvert fyrir verðlaunasætinu í dag.Vísir/Getty
Hamilton komst fram úr Raikkonen og Perez í gegnum fyrsta þjónustusvæðið. Hamilton smeygði sér svo fram úr Daniel Ricciardo fljótlega eftir þjónustuhléið. Hamilton sveiflaði sér svo fram úr báðum Williams bílunum sem voru komnir framarlega en áttu eftir að taka þjónustuhlé.

Ricciardo tapaði miklum tíma í baráttunni við Raikkonen og kom út langt á eftir Raikkonen. Vettel kom inn hring á eftir Hamilton og missti hann fram úr sér. Vettel fékk mjúk dekk undir bílinn og átti greinilega að ná að komast fram úr Hamilton sem var á hörðum dekkjum. Baráttan var mjög hörð þeirra á milli.



Vettel slakaði á eltingarleiknum eftir fjóra spennandi hringi. Vettel hefur líklega klárað allt grip í mjúku dekkjunum. Hamilton hóf þá stífa sókn að Verstappen.

Fremstu ökumenn voru að tapa miklum tíma fyrir aftan hægfara bíla. Mercedes bílarnir virtust sleppa betur í gegn heldur en Red Bull og Ferrari bílarnir. Vettel ók með aðra hönd á stýri á stórum köflum með hina upp úr bílnum til að skamma menn fyrir að víkja ekki.

Rosberg hafði verið einmanna fremstur alla keppnina. Hann leyfði Hamilton og Verstappen að sækja á sig, hann virtist öruggur um að geta haldið aftur af þeim.

Helsta baráttan á brautinni var um annað sætið á milli Verstappen og Hamiltn. Baráttan var einkar hörð síðustu fimm hringina. Helsta von Hamilton var á ráskaflanum þar sem hann gat opnað afturvænginn. Hamilton gerði mistök á næst síðasta hring og þurfti að sætta sig við að komast ekki fram úr Verstappen.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudegi í Japan

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir japanska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð annar á báðum æfingum.

Rosberg á ráspól í Japan

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól þegar japanski kappaksturinn hefst á morgun. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×