Formúla 1

Nico Rosberg fyrstur í mark í Rússlandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var ósnertanlegur í dag.
Nico Rosberg var ósnertanlegur í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í rússneska kappakstrinum. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Rosberg hefur nú unnið sjö keppnir í röð og leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna með 43 stigum. Hamilton tókst að berjast úr 10. sæti upp í annað.

Sebastian Vettel datt út á fyrsta hring eftir samstuð við heimamanninn Daniil Kvyat á Red Bull. Nico Hulkenberg datt út líka á fyrsta hring á Force India, liðsfélagi hans, Sergio Perez þurfti að koma inn eftir fyrsta hring með sprungið dekk.

Kvyat ók tvisvar á Vettel í fyrstu tveimur beygjunum. Fyrst beint aftan á Vettel og svo aftur einni beygju seinna. Vettel var allt annað en sáttur.

„Það var keyrt tvisvar aftan á mig, hvað í fjandanum er í gangi hérna,“ sagði Vettel í talstöðinni.

Kimi Raikkonen náði að komast fram úr landa sínum Valtteri Bottas í ræsingunni og þegar öryggisbíllinn fór inn var Rosberg fremstur með Raikkonen fyrir aftan sig og Bottas fyrir aftan hann. Bottas stal öðru sætinu af Raikkonen í endurræsingunni og Hamilton kom sér upp í fjórða sæti.

Hamilton stal þriðja sætinu af Raikkonen á sjöunda hring. Raikkonen hafði reynt að taka annað sætið af Bottas og missti við það taktinn og Hamilton nýtti sér það.

Ræsingin skóp keppnina í dag.Vísir/Getty
Hamilton þurfti þá næst að komast fram úr Bottas til að reyna að elta liðsfélaga sinn. Á meðan Hamilton reyndi það jók Rosberg forksot sitt á þvöguna jafnt og þétt. Bottas létti Hamilton lífið og tók þjónustuhlé við lok 16. hrings. Hamilton gaf allt í botn og tók svo þjónustuhlé á næsta hring. Hamilton tókst ekki að nýta þjónustuhléið til að komast fram úr Bottas en tókst það skömmu seinna.

Raikkonen tókst svo að smeygja sér á milli Bottas og Hamilton eftir sitt þjónustuhlé á hring 20.

Þegar Rosberg hafði tekið sitt þjónustuhlé var bilið á milli Hamilton og Rosberg um 13 sekúndur.

Baráttan um áttunda sæti var mjög spennandi, Kevin Magnussen, Romain Grosjean, Daniel Ricciardo og Carlos Sainz börðust af hörku.

Vélin gaf sig í bíl Max Verstappen á hring 35.

Hamilton minnkaði bilið niður í 7 sekúndur með góðum hringjum í kringum hring 35. Um leið og allt fór að líta vel út fyrir Hamilton fékk hann að vita af vatnsþrýstingsvandamáli í bílnum. Rosberg svaraði þá með því að setja hraðasta hring keppninnar og nýtt brautarmet á Sochi brautinni. Bilið á milli þeirra tók að aukast aftur í kjölfar skilaboðanna til Hamiltons um að passa þrýstinginn.

McLaren endaði með báða bílana í stigasæti í fyrsta skipti á tímabilinu.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar.


Tengdar fréttir

Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Formúlu 1 keppni helgarinnar í Rússlandi, liðsfélagi hans hjá Mercedes Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingu dagsins.

Nico Rosberg á ráspól og Lewis Hamilton enn óheppinn

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól á morgun í rússneska Formúlu 1 kappakstrinum. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari en ræsir sjöundi. Valtteri Bottas á Williams varð þriðji en ræsir annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði en ræsir þriðji.

Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari

Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega.

Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu

Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu á ráslínunni fyrir rússneska Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer um helgina. Vettel þurfti nýjan gírkassa eftir bilun sem varð í Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×