Formúla 1

Nico Rosberg fyrstur á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg var í eigin heimi í dag og sigldi örugglega fyrstur í mark.
Rosberg var í eigin heimi í dag og sigldi örugglega fyrstur í mark. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í þýska kappakstrinum. Annar varð Valtteri Bottas á Williams, Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji.

Keppnin var viðburðarík mikið var um fram úr akstur og töluvert um að bílar snertust í brautinni.

Kevin Magnussen á McLaren ók á Felipe Massa í fyrstu beygju og hvolfdi Williams bílnum. Dagurinn var því stuttur fyrir Massa. Þetta var því þriðja keppnin í ár þar sem Massa dettur út á fyrsta hring. Magnussen gat þó haldið áfram.

Öryggisbíllinn kom út vegna veltunnar. Hann fór þó fljótt inn aftur. Dómarar keppninnar ákváðu að ekki væri ástæða til að refsa neinum fyrir atvikið.

Lewis Hamilton ræsti af stað í 20. sæti eftir að hafa lent á varnarvegg í fyrstu lotu tímatökunnar og þurft að skipta um gírkassa.

Williams bíll Massa illa farinn eftir veltunaVísir/Getty
Daniil Kvyat þurfti að sýna skjót viðbrögð þegar kviknaði í Toro Rosso bíl hans á hring 45.

Adrian Sutil snérist í síðustu beygjunni og drap á bílnum á miðri ráslínunni. Brautarstarfsmenn komu til að ýta bílnum í öruggt skjól.

„Ég er mjög pirraður, því í fyrsta lagi hef ég haft góðan bíl alla helgina og svo var ég ekki að reyna að vera ágengur í fyrstu beygju. Ég var að keppa við liðsfélaga minn þegar annar bíll ekur aftan á mig. Þetta er ekki beygja sem rúmar þrjá bíla í einu,“ sagði Massa um óhappið.

„Við munum fagna örlítið í kvöld, þið munið vonandi gera það líka. Gaman að geta framlengt heimsmeistaragleðina í Þýskalandi,“ sagði Rosberg sem var alsæll með árangur dagsins.

„Ég er glaður með þriðja verðlaunasætið í röð, þessir (Mercedes) voru aldrei aldrei langt undan,“ sagði Bottas sem tókst að halda öðru sætinu þrátt fyrir árás Hamilton.

Rosberg var maður dagsins.Vísir/Getty
Keppnin fór svona:

1.Nico Rosberg - Mercedes - 25 stig

2.Valtteri Bottas - Williams - 18 stig

3.Lewis Hamilton - Mercedes - 15 stig

4.Sebastian Vettel - Red Bull - 12 stig

5.Fernando Alonso - Ferrari - 10 stig

6.Daniel Ricciardo - Red Bull - 8 stig

7.Nico Hulkenberg - Force India - 6 stig

8.Jenson Button - McLaren - 4 stig

9.Kevin Magnussen - McLaren - 2 stig

10.Sergio Perez - Force India - 1 stig

11.Kimi Raikkonen - Ferrari

12.Pastor Maldonado - Lotus

13.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Jules Bianchi - Marussia

16.Kamui Kobayashi - Caterham

17.Max Chilton - Marussia

18.Marcus Ericsson - Caterham

Þessir duttu út:

Adrian Sutil - Sauber

Daniil Kvyat - Toro Rosso

Romain Grosjean - Lotus

Felipe Massa - Williams


Tengdar fréttir

FIA íhugar breyttar refsingar

Alþjóða aksturstíþróttasambandið (FIA) leitar nú nýrra leiða til að refsa liðum fyrir óörugg þjónustuhlé. Núgildandi reglur refsa ökumönnum fyrir slík þjónustuhlé.

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?

Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

Rosberg á ráspól í Þýskalandi

Nico Rosberg á Mercedes náði í ráspól á heimavelli. Valtteri Bottas varð annar á Williams og liðsfélagi hans Felipe Massa varð þriðji.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg á Mercedes varð fljóstastur á fyrri æfingu dagsins. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton var skammt á eftir honum. Hamilton varð svo flótastur á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×