Formúla 1

Nico Rosberg átti daginn á Silverstone

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg er maðurinn til að reyna að ógna í tímatökunni á morgun.
Nico Rosberg er maðurinn til að reyna að ógna í tímatökunni á morgun. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Hann rétt marði liðsfélaga sinn Lewis Hamilton á fyrri æfingunni.

Rosberg missti af stórum hluta fyrri æfingarinnar vegna bilunar í glussakerfi bilsins. Hamilton var einungis 0,07 á eftir besta tíma Þjóðverjans.

Max Verstappen átti góða æfingu á Toro Rosso bílnum og varð þriðji. Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði og Carlos Sainz á Toro Rosso varð fimmti.

Kimi Raikkonen var snöggur í dag.Vísir/Getty
Á seinni æfingunni varð Hamilton fjórði og tæplega hálfri sekúndu á eftir Rosberg. Raikkonen varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Romain Grosjean á Lotus strandaði í mölinni í hinni löngu Luffield beygju. Fernando Alonso á McLaren fór út af brautinni á sama stað en nam ekki staðar. Manor ökumaðurinn Roberto Merhi lenti í vandræðum í sömu beygju. Luffield beygjan er greinilega ein sú erfiðasta á brautinni.

Bein útsending frá tímatökunni á Silverstone hefst klukkan 11:50 á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu upplýsingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×