Formúla 1

Nico Rosberg á ráspól í Ungverjalandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg sýndi mátt sinn í dag.
Rosberg sýndi mátt sinn í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði sínum sjötta ráspól á tímabilinu í tímatöku dagsins. Sebastian Vettel á Red Bull varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Fyrsta lotan fór rólega af stað, fáir bílar fóru af stað í byrjun hennar. Einn þeirra sem fór var þó Pastor Maldonado á Lotus. Hann komst ekki nema tæpan hring. Bíll hans nam staðar á grasbala í brautarkanti.

Mercedes bíll Lewis Hamilton kveikti í sér. Þetta er þá önnur tímatakan í röð sem bíllinn hans bilar í fyrstu lotunni. Hugsanlega fuðruðu þar með vonir hans um að vinna keppnina á morgun, upp.

Jules Bianchi kom Marussia bíl sínum í aðra lotu tímatökunnar á kostnað Kimi Raikkonen. Ferrari tók áhættu og reyndi að komast í gegn á harðari dekkjum helgarinnar. Áhættan borgaði sig ekki fyrir Finnann.

Í fyrstu lotunni duttu Hamilton og Maldonado út ásamt Marcus Ericsson og Kamui Kobayashi á Caterham, Max Chilton á Marussia og Kimi Raikkonen á Ferrari.

Benzinn hans Hamilton brennur.Vísir/Getty
Önnur lotan var rólegri en sú frysta. Í annari lotunni sátu sex hægustu eftir. Það voru Daniil Kvyat á Toro Rosso, Adrian Sutil og Esteban Gutierrez á Sauber, Sergio Perez á Force India, Romain Grosjean á Lotus og Jules Bianchi á Marussia.

Á milli annarar og þriðju lotu fór að dropa aðeins úr lofti. Öllum lá því á að komast af stað í þriðju lotunni til að setja tíma áður en brautin blotnaði meira.

Kevin Magnussen fór ekki nógu varlega og endaði inn í dekkjavegg. Rigningin hefur greinilega átt hlut í óhappinu. Það náði enginn að setja tíma í fyrstu tilraun því rauðum flöggum var veifað og tímatakan stöðvuð um tíma.

Ökumenn fóru svo aftur út á þurr dekkjum með það fyrir augum að fara varlega í fyrstu beygjunni sem var eini blauti hluti brautarinnar.

„Ég leit í speglana og sá að bíllinn logaði, ég rúllaði áfram og reyndi að komast inn á þjónustusvæðið. Mér var svo sagt að stöðva strax, sem ég gerði,“ sagði Hamilton.

„Liðið sagði að við þyrftum ekki að fara út aftur, ég spurði nokkrum sinnum til að vera alveg viss og var sagt að við þyrfum ekki að fara út. Við sjáum öll hvernig þetta fór,“ Raikkonen greinilega allt annað en sáttur við ákvörðun liðsins.

„Ég hefði notið þess meira að ná ráspól ef ég hefði barist við Lewis undir lokin en ráspóllin er alltaf góður staður til að byrja keppnina,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna.

„Brautinn hentar okkur betur, þess vegna erum við örlítið nær en áður. Bilið í Mercedes er þó enn mikið, meira en við vorum að vona. Annað sætið var það besta sem við gátum í dag,“ sagði Vettel eftir tímatökuna.

„Við höfum tækifæri til að ná í mikið af stigum á morgun. Við höfum unnið vel sem lið til að laga bílinn að þessari braut sem er sennilega ein af lakari brautum tímabilsins fyrir okkar bíl,“ sagði Bottas sem var glaður með þriðja sætið á ráslínu.

Vettel gerði vel í dag og tryggði sér annað sæti á ráslínu.Vísir/Getty
Niðurstaða tímatökunnar:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Sebastian Vettel - Red Bull

3.Valtteri Bottas - Williams

4.Daniel Riccardo - Red Bull

5.Fernando Alonso - Ferrari

6.Felipe Massa - Williams

7.Jenson Button - McLaren

8.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

9.Nico Hulkenberg - Force India

10.Kevin Magnussen - McLaren

11.Daniil Kvyat - Toro Rosso

12.Adrian Sutil - Sauber

13.Sergio Perez - Force India

14.Esteban Gutierrez - Sauber

15.Romain Grosjean - Lotus

16.Jules Bianchi - Marussia

17.Kimi Raikkonen - Ferrari

18.Kamui Kobayashi - Caterham

19.Max Chilton - Marussia

20.Marcus Ericsson - Caterham

Lewis Hamilton - Mercedes - Setti ekki tíma

Pastor Maldonado - Lotus - Setti ekki tíma

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport á morgun.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Heimamaður vann á Hockenheim

Nico Rosberg á Mercedes vann þýska kappaksturinn um helgina. Það var í fyrsta sinn sem þjóðverji vinnur Formúlu 1 keppni í Þýskalandi í þýskum bíl. Hvað eru mörg Þ í því?

Rosberg á ráspól í Þýskalandi

Nico Rosberg á Mercedes náði í ráspól á heimavelli. Valtteri Bottas varð annar á Williams og liðsfélagi hans Felipe Massa varð þriðji.

Nico Rosberg fyrstur á heimavelli

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í þýska kappakstrinum. Annar varð Valtteri Bottas á Williams, Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×