Formúla 1

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg var fljótastur í dag í fjarrveru Lewis Hamilton.
Nico Rosberg var fljótastur í dag í fjarrveru Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur í tímatöku dagsins fyrir belgíska kappaksturinn. Max Verstappen varð annar á Red Bull og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji.

Rosberg náði í sinn sjötta ráspol á tímabilinu. Verstappen er sá yngsti til að ræsa á fremstu ráslínu. Verstappen mun ræsa á mýkri dekkjum en ökumennirnir í kringum hann. Keppnin verður afar spennandi á morgun.

Í fyrstu lotunni var augljóst að Lewis Hamilton ætlaði ekki að setja of mikið álag á nýju vélina sína. Hann ók einungis þannig að hann þyrfti ekki að fara til dómaranna og óska heimildar til að keppa. Reglan er sú að ef ökumaður tekur ekki þátt eða þá að brautartíminn hans er meira en 107% af hraðasta tímanum þá þarf ökumaðurinn að fá keppnisleyfi hjá dómurum keppninnar.

Sjá einnig: Hamilton færður aftur um 30 sæti á ráslínu.

Í fyrstu lotunni duttu út: Hamilton á Mercedes, Fernando Alonso á McLaren, Esteban Ocon á Manor, Daniil Kvyat á Toro Rosso og Sauber ökumennirnir. Á meðan var Felipe Massa á Williams fljótastur í lotunni rétt á undan Ferrari mönnum.

Max Verstappen á Red Bull er yngsti ökumaðurinn til að ræsa af fremstu ráslínu.Vísir/Getty
Í annarri lotu duttu út: Carlos Sainz á Toro Rosso og Pascal Wehrlein á Manor ásamt Haas og Renault ökumönnunum. Rosberg var fljótastur í lotunni, Verstappen varð annar.

Ofurmjúku dekkin ollu vandræðum, það var afar heitt og dekkin dugðu varla heilan hring. Ökumenn tóku því afar rólega úthringi og reyndu að nýta allt sem dekkin áttu að gefa.

Síðasta lotan var aldrei í hættu hjá Rosberg. Baráttan var á milli Red Bull og Ferrari um hver kæmist á fremstu röð með Rosberg.


Tengdar fréttir

Formúlu 1 bílar verða á teinum á næsta ári

Með innkomu breiðari dekkja og breiðari fram- og afturvængja er Paul Hembrey, yfirmaður kappakstursdeildar Pirelli, sannfærður um að bílarnir verði eins og á lestateinum.

Honda á tvær uppfærslur eftir á árinu

Honda, japanski vélaframleiðandinn sem sér McLaren liðinu fyrir vélum í Formúlu 1 segist eiga eftir að uppfæra vélina tvisvar á árinu. Eftir það beinist athyglin að 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×