Formúla 1

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg í rigningunni
Rosberg í rigningunni Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes plantaði sér á ráspól fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel þriðji.

Tímatakan hófst á mjög blautri braut eftir rigningu morgunsins. Það rigndi meira þegar leið á tímatökuna. Fyrirfram mátti búast við yfirburðum Mercedesliðsins. Stærsta spurningin var hvort einhver gæti komið á óvart eftir sumarfrí.

Binachi kom Marussia bíl sínum upp úr fyrstu lotu tímatökunnar.Vísir/Getty
Ökumenn fóru varlega í byrjun fyrstu lotu til að kanna aðstæður og finna pollana á brautinni sem var greinilega mjög hál. Mikið var um að ökumenn færu vítt í beygjum og út fyrir braut sökum bleytu.

Í fyrstu lotunni duttu sex hægustu ökumennirnir út. Það voru, André Lotterer og Marcus Ericsson á Caterham, Esteban Gutierrez á Sauber, Nico Hulkenberg á Force India, Max Chilton á Marussia og Pastor Maldonado á Lotus.

Í annari lotu duttu út, Jules Bianchi á Marussia, Sergioa Perez á Force India, Romain Grosjean á Lotus, Adrian Sutil á Sauber og Toro Rosso ökumennirnir Daniil Kvyat og Jean-Eric Vergne.

Í þriðju lotunni kvartaði Lewis Hamilton sáran undan frambremsunum á bíl sínum. Hann sagði þær ekki virka almennilega. Hugsanlega útskýrir það muninn á honum og Rosberg í dag.

„Við erum með frábæran bíl, við leiðum og það er svo svalt að sjá liðið standa sig svona vel. Við eigum mjög góðan möguleika á morgun - og ég hlakka til morgundagsins,“ sagði Rosberg hæstánægður eftir góða tímatöku.

„Þetta var erfið tímataka. Lota 2 var erfið fyrir okkur, ég reyndi að vera áfram út á brautinni en þá byrjaði að rigna meira. Ég vildi spara dekkjagang fyrir þriðju lotuna. Mér tókst að lokum að bjarga mér upp úr annari lotu,“ sagði Vettel, sem hefði viljað enda ofar en hann sagði að bilið vera of stórt í Mercedes bílana.

„Ég var með ískalda bremsu vinstra megin að framan, svo bíllinn leitaði til hægri. Það var ekkert sem ég gat gert á úthringnum til að losna við þetta. Ég tapaði mikum tíma,“ sagði Hamilton. Hann var ekki að lenda í fyrstu bremsuvandamálunum á tímabilinu. 





Williams heillum horfnir eftir sumarfrí? Sjáum hvað gerist á morgun.Vísir/Getty
Úrslit tímatökunnar fyrir belgíska kappaksturinn 2014:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Lewis Hamilton - Mercedes

3.Sebastian Vettel - Red Bull

4.Fernando Alonso - Ferrari

5.Daniel Ricciardo - Red Bull

6.Valtteri Bottas - Williams

7.Kevin Magnussen - McLaren

8.Kimi Raikkonen - Ferrari

9.Felipe Massa - Williams

10.Jenson Button - McLaren

11.Daniil Kvyat - Toro Rosso

12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

13.Sergio Perez - Force India

14.Adrian Sutil - Sauber

15.Romain Grosjean - Lotus

16.Jules Binachi - Marussia

17.Pastor Maldonado - Lotus

18.Nico Hulkenberg - Force India

19.Max Chilton - Marussia

20.Esteban Gutierrez - Sauber

21.André Lotterer - Caterham

22.Marcus Ericsson - Caterham

Keppnin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun og hefst útsendingin kl 11:30.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Horner: Margar ástæður fyrir erfiðleikum Vettel

Liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, Christian Horner segir margar þætti valda Vettel erfiðleikum í ár. Þar á meðal sé staðreyndin að Sebastian Vettel er ekki að berjast um heimsmeistaratitilinn.

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Marussia setur Chilton á bekkinn

Marussia liðið í Formúlu 1 hefur ákveðið að Alexander Rossi aki fyrir liðið í belgíska kappakstrinum í stað Max Chilton. Samningaviðræður á milli Marussia og Chilton virðast hafa strandað.

Massa: Flott að enda framar en Ferrari

Felipe Massa kveðst vongóður að Williams liðið nái að skáka hans gamla liði Ferrari í stigakeppni bílasmiða. Hann segir að það væri mjög jákvætt fyrir Williams.

Caterham skiptir Kobayashi út

Caterham liðið staðfesti í dag að André Lotterer muni aka í stað Kamui Kobayashi alla belgísku keppnishelgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×