Lífið

Nicki Minaj kallaði Miley Cyrus tík í beinni útsendingu - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosaleg uppákoma í L.A. í gær.
Rosaleg uppákoma í L.A. í gær.
MTV tónlistarmyndbandahátíðin fór fram í Los Angeles í nótt og tókst hátíðin nokkuð vel. Nokkur atriði stóðu samt sem áður upp úr og má þar nefna þegar Nicki Minaj missti sig yfir Miley Cyrus, sem var kynnir hátíðarinnar.

Minaj var að taka á móti verðlaunum fyrir besta hip-hop myndbandið þegar hún kallaði Cyrus tík fyrir að hafa talað illa um hana í fjölmiðlum. Hún fékk verðlaunin fyrir myndbandið við lagið Anaconda.

Sumir miðlar halda því fram að atriðið hafi verið sviðsett en lesendur Lífsins geta eflaust dæmt um það sjálfir.

Hér að neðan má sjá myndband frá atvikinu.

Everything was cool and then Nicki Minaj freaked the fuck out on Miley Cyrus #VMAs

Posted by Official Misee Harris on 30. ágúst 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×