Sport

NFL-stjarna bauð 18 ára stelpu á skóladansleik | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sen'Derrick Marks.
Sen'Derrick Marks. Vísir/Getty
Sen'Derrick Marks er varnarmaður hjá Jacksonville Jaguars í ameríska fótboltanum og um helgina sýndi kappinn að hann er ekki bara með stóra vöðva heldur líka stórt hjarta.

Hinn 28 ára gamli Sen'Derrick Marks birtist á Wolfson-barnaspítalanum í Jacksonville og bauð hinni 18 ára gömlu Khameyea Jennings á árshátíðarball skólans.

Sen'Derrick Marks mætti með risastóran blómvönd til Jennings sem játti því að mæta með NFL-stjörnu á lokaballið sitt.

Khameyea Jennings greindist með krabbamein árið 2013 en hún og Marks komu saman á ballið í hinum stórglæsilega Lamborghini-bíl kappans.

„Ég lít vel út, daman mín lítur vel út og þetta verður frábært kvöld. Ég mun vera til staðar fyrir hana hér eftir," sagði Sen'Derrick Marks í viðtali við First Coast News.

Khameyea Jennings fór í aðgerð fyrir ári síðan þar sem æxli var fjarlægt út lungum hennar. Æxlið er hinsvegar komið aftur.

„Við fótboltamenn lendum oft í erfiðum aðstæðum en það er þó ekkert miðað við það sem hún hefur gengið í gegnum. Ég vildi bara að hún ætti skemmtilegt kvöld og fengi tækifæri til að brosa," sagði Sen'Derrick Marks

Jacksonville Jaguars hefur einnig sagt fá þessu á twitter-síðu félagsins og það má sjá dæmi um það hér fyrir neðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×