Sport

NFL: Óvæntur sigur Rams í sögulegri heimkomu | Sjáðu öll snertimörk helgarinnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robert Quinn fagnar eftir að hafa fellt Russell Wilson.
Robert Quinn fagnar eftir að hafa fellt Russell Wilson. Vísir/Getty
LA Rams náði að svara fyrir hörmulega frammistöðu sína í fyrstu umferð tímabilsins í NFL-deildinni með því að vinna meistaraefnin í Seattle Seahawks á heimavelli í gær, 9-3.

Rams skoraði ekki eitt einasta stig þegar liðið steinlá fyrir San Francisco 49ers aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku.

Leikstjórnandinn Case Keenum náði reyndar ekki heldur að kasta fyrir snertimarki í nótt en kom liðinu þó nógu langt til að skora þrjú vallarmörk.

Vörn Rams sá svo um að halda Russell Wilson og hans mönnum í Seattle í skefjum og náðu gestirnir að skora aðeins eitt vallarmark í leiknum.

Þetta var fyrsti heimaleikur Rams í Los Angeles í 22 ár en liðið flutti þangað aftur frá St. Louis í sumar. Rúmlega 91 þúsund manns voru á leiknum og fögnuðu sigrinum vel og innilega.

Adrian Peterson gat ekki stigið í hægri löppina í gær.Vísir/Getty
Víkingaklappið í sigurliði

Minnesota Vikings vann Green Bay Packers í næturleiknum, 17-14, í fyrsta leik sínum á nýjum leikvangi sem var vígður með frumsýningu á Víkingaklappinu, eins og áður hefur verið fjallað um.

Sjá einnig: Víkingaklappið virkaði fyrir Minnesota Vikings

Þetta var fyrsti leikur leikstjórnandans Sam Bradford í byrjunarliði Minnesota en hann var fenginn til liðsins nokkrum dögum fyrir tímabilið er Teddy Bridgewater sleitt krossband í hné á æfingu.

Bradford kastaði fyrir tveimur snertimörkum og vörn Vikings sá um að halda Aaron Rodgers, leikstjórnanda Packers, í skefjum. Rodgers var felldur fimm sinnum í leiknum og tapaði boltanum tvívegis í fjórða leikhluta.

Sigurinn var þó súrsætur fyrir Vikings sem missti sinn besta leikmann, hlauparann Adrian Peterson, af velli vegna hnémeiðsla. Óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru.

Jimmy Garoppolo meiddist á öxl.Vísir/Getty
Afleysingamaður Brady meiddist

Önnur meiðsli sem skóku deildina í gær voru meiðsli  Jimmy Garoppolo hjá New England Patriots. Garoppolo er að leysa Tom Brady af hólmi á meðan að sá síðarnefndi tekur út fjögurra leikja bann.

Garoppolo átti frábæran leik og kastaði fyrir þremur snertimörkum áður en hann fór af velli vegna axlarmeiðsla í öðrum leikhluta. Patriots náði að hanga á forystunni og vinna sigur, 31-24. Þess má geta að Rob Gronkowski, einn besti innherji deildarinnar, spilaði ekki heldur með Patriots í nótt vegna meiðsla. Liðið hefur þrátt fyrir það unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu.

Jacoby Brissett tók við Garoppolo og gæti nú fengið það óvænta hlutverk að vera í aðalhlutverki Patriots næstu tvær helgar.

Úrslit helgarinnar má sjá hér fyrir neðan en umferðinni lýkur með leik Philadelphia Eagles og Chicago Bears í kvöld. Hér má sjá öll snertimörk helgarinnar og hér hestu tilþrifin.

Úrslit gærdagsins:

Carolina - San Francisco 46-27

Cleveland - Baltimore 20-25

Detroit - Tennessee 15-16

Houston - Kansas City 19-12

New England - Miami 31-24

NY Giants - New Orleans 16-13

Pittsburgh - Cincinnati 24-16

Washington - Dallas 23-27

Arizona - Tampa Bay 40-7

LA Rams - Seattle 9-3

Denver - Indianapolis 34-20

Oakland - Atlanta 28-35

San Diego - Jacksonville 38-14

Minnesota - Green Bay 17-14

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×