Fótbolti

Neymar sendi einkaþotu eftir serbneskri fyrirsætu

Vucelic birti þessa mynd af sér í einkaþotunni á Instagram. Hún fjarlægði hana síðar.
Vucelic birti þessa mynd af sér í einkaþotunni á Instagram. Hún fjarlægði hana síðar.
Brasilíski snillingurinn Neymar virðist vera yfir sig hrifinn af serbneskri fyrirsætu.

Sú heitir Soraja Vucelic en hana hitti Neymar á Ibiza síðasta sumar. Þau hafa haldið sambandi alla tíð síðan.

Svo spenntur var Neymar að fá hana í heimsókn að hann sendi einkaþotu eftir henni að því er fram kemur í serbneskum fjölmiðlum.

Hún átti að koma í heimsókn til hans um helgina en Neymar gat ekki beðið og sendi því þotuna eftir henni og vinkonu hennar um daginn. Ætlar hún að dvelja hjá Neymar næstu daga.

Neymar á að spila með Barcelona gegn Celta Vigo á morgun og mun örugglega sýna Vucelic sparihliðarnar í þeim leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×