Fótbolti

Neymar hnakkreifst við stuðningsmann City | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Neymar í baráttu við Pablo Zabaleta í gær.
Neymar í baráttu við Pablo Zabaleta í gær. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Neymar, leikmaður Barcelona, lét ungan stuðningsmann Manchester City fara í taugarnar á sér í gær og reifst við hann eftir að leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.

Neymar var skipt af velli tíu mínútum fyrir leikslok og horfði á síðustu mínúturnar af varamannabekknum. City-menn fögnuðu þegar Lionel Messi brenndi af vítaspyrnu í uppbótartíma og einn þeirra beindi orðum sínum að Neymar.

„Ég var bara að leika mér að honum,“ sagði Neymar við brasilíska fjölmiðla eftir leikinn. „Hann hóf að blóta mér og ég gerði grín að honum. Ég get ekki endurtekið það sem hann sagði. Móðir mín ól mig upp á vissan hátt en ég veit ekki hvers kyns uppeldi hann fékk frá sinni móður.“

Atvikið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Suarez afgreiddi Man. City | Sjáðu mörkin

Barcelona er í frábærri stöðu í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 1-2 útisigur á Man. City í fyrri leik liðanna. Barca hefði átt að vinna 1-3 en sjálfur Lionel Messi gerði sig sekan um ótrúleg mistök í uppbótartíma.

Pellegrini: Vítaspyrnuklúður Messi gefur okkur möguleika

Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, telur að vítaspyrnuvarsla Joe Hart hafi haldið lífi í möguleikum liðsins á því að slá út Barcelona og komast í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×