Fótbolti

Neymar áritaði treyju í miðjum leik

Ekkert mál. Hinn vinalegi Neymar áritaði treyjuna eins og ekkert væri.
Ekkert mál. Hinn vinalegi Neymar áritaði treyjuna eins og ekkert væri. vísir/afp
Æstur aðdáandi Brasilíumannsins Neymar hljóp inn á völlinn í gær í miðjum leik til þess að fá áritun hjá kappanum.

Neymar kippti sér ekkert upp við truflunina og áritaði Barcelona-treyju mannsins í rólegheitum. Maðurinn var að sjálfsögðu fjárlægður en fékk það sem hann vildi.

Brassarnir stóðu sig annars ágætlega gegn Austurríki og unni 2-1. Robert Firmino skoraði sigurmarkið.

Ekki gleyma pennanum. Neymar sér til þess að maðurinn fái pennann sinn aftur.vísir/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×