Fótbolti

Neymar: Einstök sending hjá Iniesta

Brasilíumaðurinn Neymar var stjarnan á Camp Nou í kvöld er Barcelona tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri en Barcelona fór áfram 5-1 samanlagt.

„Við spiluðum frábærlega rétt eins og í leiknum í París. Þetta var liðsframmistaða eins og hún gerist best," sagði Neymar eftir leikinn.

Fyrra markið hans kom eftir frábæra undirbúning hjá Andres Iniesta.

„Þetta var einstök sending hjá Iniesta. Ég þurfti bara að koma boltanum í netið. Ég er mjög ánægður með tímabilið og við verðum að halda svona áfram."

Markið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Neymar afgreiddi PSG | Sjáðu mörkin

Barcelona er komið í undanúrslit í Meistaradeild Evrópu eftir sannfærandi sigur á PSG í seinni leik liðanna. Lokatölur 2-0 og 5-1 samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×