Innlent

Neyðarvarnaræfing fyrir þjóðina

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Björn Teitsson er upplýsingafulltrúi Rauða krossins en hann segir þetta í fyrsta sinn sem æfing af þessu tagi er haldin fyrir heila þjóð.
Björn Teitsson er upplýsingafulltrúi Rauða krossins en hann segir þetta í fyrsta sinn sem æfing af þessu tagi er haldin fyrir heila þjóð. Mynd/Björn
„Þetta er í fyrsta sinn sem Rauði krossinn fer í neyðarvarnaræfingu fyrir heila þjóð,“ segir Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, en samtökin hyggjast opna 48 fjöldahjálparstöðvar um allt land til þess að kynna þjóðinni þau úrræði sem í boði eru ef kemur til hamfara. „Ekki bara fyrir þjóðina heldur líka gestina okkar sem eru hér staddir,“ bætir Björn við.

Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins eru alls um tvö hundruð talsins en ákveðið var að einbeita sér að fjölmennari stöðum á landinu. Æfingin fer fram á sunnudaginn milli klukkan 11 og 15.

Að sögn Björns er gosið í Holuhrauni ekki ástæðan fyrir því að Rauði krossinn ákvað að ráðast í æfinguna. „Það var í raun tilviljun ein sem réð því að náttúran hefur haldið okkur í heljargreipum undanfarnar vikur. En við vitum að hamfarir geta orðið á hvaða stundu sem er. Hvatinn er samkomulag sem Rauði krossinn hefur haft við Almannavarnir síðan í Vestmannaeyjagosinu árið 1974,“ útskýrir hann en eftir gosið í Heimaey tóku hjálparsamtökin að sér að hlúa að þeim sem verða fyrir áhrifum hamfara.

Klúbbur matreiðslumeistara mun elda ofan í alla þjóðina hinn þjóðlega rétt kjötsúpu og mörg hundruð sjálfboðaliða Rauða krossins standa vaktina.

Á vefsíðu Rauða krossins er að finna upplýsingar um hvar hjálparstöðvarnar eru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×