Erlent

New York Times birtir lista yfir allt og alla sem Donald Trump hefur gert lítið úr á Twitter

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Donald Trump í Delaware, Ohio.
Donald Trump í Delaware, Ohio. Vísir/AFP
Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, er ekki þekktur fyrir að hafa taumhald á sjálfum sér og þá allra síst á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem hann lætur gjarnan vaða á súðum um bæði allt og ekkert. Nafntogaðir einstaklingar verða oft fyrir barðinu á Trump og bandaríska stórblaðið New York Times birti í dag tæmandi lista yfir allt og alla sem Trump hefur móðgað með hjálp Twitter frá því að hann tilkynnti um forsetaframboð sitt.

Listinn nær yfir heila opnu í dagblaðinu en hingað til hefur listinn verið opinber á vefsíðu blaðsins. Alls eru 281 einstaklingur, staður eða hlutur á lista New York Times sem flokkaði einnig þá sem oftast hafa orðið fyrir barðinu á Trump. Andstæðingar hans í forvali Repúblikana eru þar ofarlega á lista, þeir Ted Cruz, Marco Rubio, Jeb Bush, John Kasich auk þess sem að Hillary Clinton hefur fengið að finna fyrir því með reglulegu millibili.



Þá hafa Fox News, sjónvarpsþátturinn The View og verslunnin Macy's fengið að kenna á reiðileistri Trump. Vonir hans um að sigra í forsetakosningunum sem haldnar verða 8. nóvember næstkomandi hafa farið dvínandi og segja má að notkun Trump á Twitter hafi haft sitt að segja í minnkandi vinsældum auðkýfingsins umdeilda.

Ber þar helst að nefna stríð hans gegn foreldrum og minningu hermannsins Humayun Khan fyrr í baráttunni. Foreldrar hans stigu á svið til stuðnings Clinton fyrr á árinu. Það fór ekki vel í Trump sem eyddi miklu púðri í að reyna að sverta minningu Khan, sem lést í Afganistan.

Tíst hans um Alicia Machado, fyrrverandi Ungfrú alheim, þar sem hann hvatti fólk til þess að horfa á kynlífsmyndband með henni vöktu einnig ekki mikla lukku. Hefur Clinton nýtt sér þetta óspart í kosningabaráttunni og notað hvert tækifæri til þess að minna á að það sé ekki við hæfi að forseti Bandaríkjanna hagi sér á þann hátt sem tíst Trump beri vitni um.


Tengdar fréttir

Forskot Clinton komið í 12 prósent

Hillary Clinton hefur tólf prósentustiga forskot á Donald Trump ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar.

Fátt kemur í veg fyrir sigur Clinton

Donald Trump hefur ekki getað nýtt sér þrennar sjónvarpskappræður til að bæta stöðu sína. Bilið á milli hans og Hillary Clinton breikkar jafnt og þétt. Kappræðurnar milli forsetaefnanna hafa allar verið hatrammar. Kosið verður 8. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×