Fótbolti

Neuer gerði langan samning við Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manuel Neuer.
Manuel Neuer. vísir/getty
Besti markvörður heims, Manuel Neuer, er ekkert á förum frá Bayern München á næstunni.

Hann er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið og er því nú samningsbundinn til 2021.

Neuer kom til félagsins frá Schalke árið 2011 og gerði þá fimm ára samning. Hann hefur nú ákveðið að endurtaka leikinn.

Í búningi Bayern er Neuer búinn að vinna þrjá deildarmeistaratitla, tvo bikartitla og Meistaradeildina einu sinni.

Titlunum á eftir að fjölga síðan í næsta mánuði enda Bayern á toppnum í Þýskalandi, í undanúrslitum í Meistaradeildinni og komnir í bikarúrslit þess utan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×