Lífið

Netverjar missa það og vilja bjarga stelpu sem þeir telja að sé í haldi mannræningja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marina Joyce er nokkuð þekkt á YouTube.
Marina Joyce er nokkuð þekkt á YouTube.
Marina Joyce er 19 ára YouTube stjarna frá Norður-London sem er nokkuð þekkt um heim allan fyrir myndbönd sín þar sem hún sýnir kvenkynsfatnað.

Þann 22. júlí kom inn nýtt myndband frá Joyce og vildu sumir meina að eftir að þegar þrettán sekúndur eru liðnar af myndbandinu heyrist í konunni; „help me“ eða „hjálpið mér“ á íslensku.

Fljótlega eftir að einhver hafði tíst um málið byrjaði fólk að dæla inn tístum undir kassamerkinu #SaveMarinaJoyce.

Tístararnir vilja meina að það sé einhver að neyða Joyce í það að koma fram í þessum myndböndum og birtu allskonar sönnunargögn máli sínu til stuðnings. Hér að neðan má sjá nokkur tíst sem birtust um málið og neðst í fréttinni má sjá alla umræðuna undir kassamerkinu #SaveMarinaJoyce.

Efst í fréttinni má sjá myndbandið umrædda en þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á það yfir 16 milljón sinnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×