Bíó og sjónvarp

Netflix tryggir sér réttinn að Hitler-háðsádeilu

Birgir Olgeirsson skrifar
Þýski leikarinn Oliver Masucci í gervi Hitlers
Þýski leikarinn Oliver Masucci í gervi Hitlers Vísir/YouTube
Streymisveitan Netflix hefur tryggt sér réttindi að þýsku skáldsögunni Look Who´s Back. Sagan er eftir Timur Vermes og var gefin út árið 2012. Hún var síðar kvikmynduð og var sú mynd frumsýnd í fyrra.

Um er að ræða háðsádeilu um Adolf Hitler en í þessari sögu vaknar hann upp á okkar tíma í fjölmenningarsamfélaginu Þýskalandi. Myndin sló rækilega í gegn í þýskum kvikmyndahúsum í fyrra, en tekjur hennar í miðasölu námu um 19,6 milljónum evra, eða 2,7 milljörðum íslenskra króna.

Þýska myndin er í anda Borat-myndarinnar hans Sacha Baron Cohen frá árinu 2006, þar sem leikarinn Oliver Masucci, í gervi Hitlers, á í samskiptum við raunverulegt fólk í Þýskalandi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×