Innlent

Nemar frá Madríd greiddu fyrir húsnæði sem ekki var til

Jakob Bjarnar skrifar
Skuggabaldrar notfæra sér neyð á húsnæðismarkaði. Nýjustu fórnarlömbin eru nemar frá Spáni. Illt afspurnar fyrir land og þjóð, segir skólastjóri.
Skuggabaldrar notfæra sér neyð á húsnæðismarkaði. Nýjustu fórnarlömbin eru nemar frá Spáni. Illt afspurnar fyrir land og þjóð, segir skólastjóri.
Valdemar G. Valdemarsson, skólastjóri Raftækniskólans, setti inn tilkynningu í umræðuhóp leigjenda á Facebook. Þar segir að tveir nemendur frá Spáni leiti nú húsnæðis þar sem fyrirframleigð íbúð reyndist ekki vera til. „Þetta snýst um nokkurra vikna skjólshús fyrir einn eða tvo. Vinsamlegast látið vita ef þið vitið um einhverja möguleika fyrir þá.“

Neyðarkall frá Madríd

Vísir hefur greint frá því að óprúttnir aðilar hafa gert sér mat úr ófremdarástandi á húsnæðismarkaði og haft fé af fólki í húsnæðishraki. En, fórnarlömbin eru af ýmsu tagi. Valdemar segir, í samtali við Vísi, skelfilegt að heyra þetta og vitaskuld afar illt afspurnar fyrir Ísland.

„Ég fékk póst frá vinaskóla okkar í Madríd, IES Principe Felipe, neyðarkall frá konu sem sér um erlend samskipti,“ segir Valdemar en þar er hrakhólum og svikunum lýst. Þeir höfðu greitt fyrir húsnæði en þegar til kom var þetta húsnæði ekki til. Valdemar telur líklegast úr því sem komið er að nemendurnir hafi hætt við og horfið heim á ný.

Vinsælt að koma í skiptinám til Íslands

„Þetta er skelfilega aðstaða sem krakkarnir lenda í. Við höfum verið í sambandi við skóla bæði í Hollandi og á Spáni. Hollendingarnir eru í standandi vandræðum með að finna húsnæði hér, styrkurinn hrekkur ekki til að mæta húsnæðiskostnaði.“

Vinsælt hefur verið að koma til Íslands í gegnum Erasmus plús styrki. Þeir hrökkva ekki til en nemendur borga þá með sér til að brúa bilið. Valdemar segir að hjá honum nú, í Raftækniskólanum, séu tíu Þjóðverjar en þeir voru búnir að semja fyrirfram við hostel á Reykjavíkursvæðinu.

„Já, þetta er ljótt að heyra og ég velti fyrir mér því hvort búið væri að kæra þetta til lögreglu? En, ég veit ekki einu sinni hvaða skóla þeir voru að heimsækja, þeir eru ekki að koma til okkar heldur sennilega Borgarholtsskóla eða einhvers annars verknámsskóla,“ segir Valdemar skólastjóri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×