Sport

Nelson-feðgarnir báðir heiðraðir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá vinstri: Bjarni Baldursson, Haraldur Dean Nelson, Jón Viðar Arnþórsson og
Gunnar Nelson.
Frá vinstri: Bjarni Baldursson, Haraldur Dean Nelson, Jón Viðar Arnþórsson og Gunnar Nelson. Mynd/Ásgerður Egilsdóttir
Feðgarnir Haraldur Dean Nelson og Gunnar Nelson hafa gert mikið fyrir útbreiðslu blandaðar bardagalistar á Íslandi og þeir voru tveir af þeim sem fengu sérstaka viðurkenningu á dögunum.

Fjórir af stofnendum Mjölnis voru heiðraðir á árshátíð félagsins um helgina fyrir vel unnin störf í gegnum árin en félagið er 10 ára á árinu.

Fjórmenningunum var þakkað fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu Mjölnis en þeir hafa unnið gríðarlega mikla sjálfboðavinnu fyrir félagið til fjölda ára og starfa allir fyrir Mjölni enn í dag.

Þessir fjórir voru: Bjarni Baldursson (þjálfari), Haraldur Dean Nelson (framkvæmdarstjóri Mjölnis og umboðsmaður),  Jón Viðar Arnþórsson (formaður Mjölnis og yfirþjálfari) og Gunnar Nelson (þjálfari og atvinnubardagamaður hjá UFC).

Gunnar Nelson er einn fremsti  bardagamaður Íslands fyrr og síðar og faðir hans hefur farið fyrir útbreiðslu blandaðar bardagalistar á Íslandi.

Jóni Viðar hefur verið höfuð Mjölnis meira og minna frá stofnun og er enn. Hann hefur líkt og Haraldur farið fyrir útbreiðslu MMA á Íslandi. Bjarni kenndi mest á sínum tíma og þá allt í sjálfboðavinnu.

Félagarnir fjórir fengu glæsilegan skjöld merktum þeim í rúnastíl en skildina má sjá í myndinni hér fyrir ofan.

Mynd/Ásgerður Egilsdóttir
MMA

Tengdar fréttir

Gunnar fær enn eina viðurkenninguna

Gunnar Nelson skákaði Svíanum Alexander Gustafsson í kjöri um besta bardagamanninn árið 2014 utan Bandaríkjanna og Bretlandseyja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×