Fótbolti

Nektarmynd þess markahæsta með norska bikarinn fjarlægð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glæsilegur Gytkjær.
Glæsilegur Gytkjær. mynd/instagram
Danski framherjinn Christian Gytkjær var markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í ár með 19 mörk í 28 leikjum. Hann var því í stuði í gær þegar Rosenborg fékk loksins bikarinn afhentan fyrir að verða norskur meistari enn eitt árið en liðið valtaði yfir deildina í ár.

Gytkjær gekk nokkuð langt í fagnaðarlátunum á Lerkendal-vellinum í gærkvöldi og lét taka af sér vafasama mynd þar sem aðeins norski meistarabikarinn huldi fermingabróðurinn og sekkinn sem honum fylgir.

Myndina setti hann á Instagram-síðu sína en við myndina skrifaði Daninn svo: „Meistarar 2016 og ég besti framherjinn. Svo fengum við líka bikar.“

TV2 í Noregi greindi fyrst frá Instagram-myndinni sem var skömmu síðar fjarlægð. Fjölmiðlafulltrúi norsku meistaranna hafði engan áhuga á að ræða þetta við fjölmiðla í gær. Rosenborg gaf ekkert út um hvort það væri ósátt við þessa hegðun eða hvort honum hafi verið sagt að taka myndina út.

Samherji Gytkjærs, norski landsliðsmaðurinn Pål André Helland, stóð aftur á móti með sínum liðsfélaga og setti mynd af sér nöktum með bikarinn á Instagram. Sú mynd er þó ekki alveg jafndónaleg og sú hjá Gytkjær. „Allt í lagi, fyrst fólk þaf að tuða. Meistarar. Gleðileg jól,“ skrifaði Helland við myndina sína.

Hólmar Örn Eyjólfsson, Guðmundur Þórarinsson og Matthías Vilhjálmsson leika allir með Rosenborg en þeir virðast hafa fagnað í öllum fötunum í gærkvöldi.

Okei da, siden folk mase. Seriegull God Jul

A photo posted by Pål Andre Helland (@pahelland) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×