Glamour

Neita að klæða og skrifa um Melania Trump

Ritstjórn skrifar
Melania Trump
Melania Trump Glamour/Getty
Það má með sanni segja að bandaríska þjóðin er klofin eftir úrslit forsetakosninganna vestanhafs þar sem Donald Trump sigraði Hillary Clinton, og margir lýst opinberlega óánægju sína yfir lokaniðurstöðunum. 

Þar á meðal er fatahönnuðurinn Sophie Theallet sem hefur verið áberandi undanfarin misseri þar sem hún er í uppáhaldi hjá fráfarandi forsetafrúnni, Michelle Obama. Hönnuðurinn sendi frá sér yfirlýsingu á Twitter þar sem hún segist ekki ætla að klæða Melania Trump. Eins og fram kemur í bréfinu segist Theallet ekki geta stutt þá hatursorðræðu sem eiginmaður hennar, Donald Trump, var með í garð minnihlutahópa í kosningabaráttunni og fari það ekki saman við gildi vörumerkis hennar. Lesa má yfirlýsinguna í heild sinni hér fyrir neðan. 

Þá hefur tískuvefurinn Fashionista einnig sett fram frétt þar sem þeir ætla að draga úr fréttum um klæðaburð tilvonandi forsetafrúarinnar, af sömu ástæðum og Theallet telur upp í yfirlýsingu sinni. Þetta gera þau þrátt fyrir að fréttir um klæðaburð forsetafrúnnam núverandi og tilvonandi, eru mjög vinsælar. Lesa má fréttina hér. 

Þ
að er spurning hvort fleiri bætist við í kjölfarið. 






×