Fótbolti

Negredo: Kom til Manchester til að eiga möguleika á landsliðssæti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alvaro Negredo
Alvaro Negredo Nordicphotos/getty
Alvaro Negredo, leikmaður Manchester City, vill meina að hann hafi gengið til liðs við félagið til að eiga meiri möguleika á því að vinna sér inn sæti í spænska landsliðshópnum fyrir HM á næsta ári.

Spáverjinn kom frá Sevilla í sumar og greiddi enska félagið um 21 milljónir punda fyrir Negredo en hann skoraði þrennu gegn CSKA Moskva í Meistaradeild Evrópu í gær.

„Ég get bætt leik minn mikið hjá City,“ sagði Negredo í viðtali við Sky Sports í gær.

„Vonandi sér landsliðsþjálfarinn hæfileika mína núna og hefur einhver not fyrir mig með landsliðinu.“

„Manchester City er klúbbur sem dregur mun meiri athygli að sér en Sevilla.“

Negredo hefur skorað fjögur mörk fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×