Erlent

Nefndarmaður rithöfundaverðlauna Nóbels segir Dylan sýna hroka

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Bob Dylan virðist lítið spenntur yfir Nóbelsverðlaununum.
Bob Dylan virðist lítið spenntur yfir Nóbelsverðlaununum. Vísir/Getty
Þögn tónlistarmannsins Bob Dylan er skerandi. Það finnst að minnsta kosti sænska rithöfundinum Per Wastberg sem situr í Nóbelsnefndinni sem ákvað að verðlauna Dylan bókmenntaverðlaunin í ár fyrir framúrskarandi textagerð í gegnum árin. Dylan er fyrsti tónlistarmaðurinn sem hlýtur verðlaunin sem verða formlega veitt 10. desember næstkomandi í Stokkhólmi.

Frá því að það var opinberað þann 13. október síðastliðinn að Dylan hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels í ár hefur nefndin og heimurinn beðið þess með óþreyju að fá viðbrögð frá goðinu. Ákvörðunin hlaut blendnar viðtökur og því hafa margir beðið spenntir eftir því að vita hvað gamla sérvitringnum sjálfum finnst. En þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir að hafa samband við hans og hans nánustu hefur Dylan verið passasamur um að tjá sig ekki um málið. Hvorki á sviði eða á samfélagsmiðlum. Hann hefur líka neitað að veita viðtöl vegna málsins.

„Ókurteisi og hroki“

Sænski rithöfundurinn Per Wastberg segir þetta sýna hroka Dylan en nefndin veit ekki einu sinni hvort tónlistarmaðurinn muni láta sjá sig á sjálfri athöfninni eður ei. Það er sjálfur Carl XVI Gustaf Svíakonungur sem á að afhenda Dylan verðlaunin

„Þetta er ókurteist og hrokafullt af honum,” sagði Wastberg í viðtali við sænska ríkissjónvarpið. “Við höfum aldrei lent í þessu áður og við fáum engin viðbrögð þrátt fyrir ítrekuð símtöl okkar meginn frá.”

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem þeir sem hafa verið verðlaunaðir af nefndinni hafa ekki mætt en aðrir hafa þó látið vita fyrir fram. Albert Einstein mætti ekki árið 1921 þegar hann fékk verðlaunin fyrir eðlisfræði og franski rithöfundurinn og heimspekingurinn Jean-Paul Sartre afþakkaði verðlaunin alfarið árið 1964.

Aðrir sem þóttu koma til greina í ár voru Salman Rushdie, sýrlenska skáldið Adonis og Ngugi wa Thiong’o frá Kenýa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×