Körfubolti

NBA-stjörnur minnast "Súkkulaði-þrumunnar"

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Darryl Dawkins.
Darryl Dawkins. Vísir/EPA
Körfuboltagoðsögnin Darryl Dawkins lést í dag 58 ára að aldri en margir af frægustu stjórnum NBA-deildarinnar í gegnum tíðina hafa minnst hansá samfélagsmiðlum í kvöld. Dánarmein Darryl Dawkins var hjartaáfall.

Darryl Dawkins var fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA sem fór beint úr menntaskóla inn í NBQA-deildina en Philadelphia 76ers valdi hann númer fimm í nýliðavalinu 1975.

Dawkins spilaði í fjórtán tímabil í NBA-deildinni með Philadelphia, New Jersey, Utah og Detroit. Hann var með 12,0 stig og 6,1 fráköst að meðaltali í 726 leikjum og nýtti 57,2 prósent skota sinna í þessum leikjum.

Darryl Dawkins var þekktur fyrir að troða boltanum af miklum krafti í körfunna og stundaði það að gefa troðslum sínum nöfn.

Gælunafn hans var „Chocolate Thunder" eða „Súkkulaði-þruman" en það var blindi tónlistamaðurinn Stevie Wonder sem fann upp á því.

Hér fyrir neðan má sjá fræga NBA-leikmenn, eldri og yngri, minnast þessa mikla kappa sem var vel metin jafnt innan sem utan vallar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×