Körfubolti

NBA segir dómarana hafa gert fimm mistök á síðustu fjórtán sekúndunum

Óskar Ófeigur Jónssoin skrifar
NBA sagði að brotið hefði verið á bæði Manu Ginobili og Steven Adams á lokasekúndunum.
NBA sagði að brotið hefði verið á bæði Manu Ginobili og Steven Adams á lokasekúndunum. Vísir/Getty
Það var mikil dramatík á lokasekúndum annars leiks San Antonio Spurs og Oklahoma City Thunder í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í úrslitakeppni NBA í körfubolta og ekki fengu dómarar leiksins háa einkunn fyrir frammistöðu sína hjá yfirmönnum sínum.

NBA gaf það nefnilega út að dómarar leiksins hafi gert fimm mistök á síðustu 13,5 sekúndum leiksins en hvorugu liðinu tókst að skora á lokasekúndunum og leikurinn endaði með 98-97 sigri Oklahoma City Thunder.

Dómararnir sjálfir höfðu viðurkennt að þeir áttu að dæma sóknarbrot á Dion Waiters, leikmann Oklahoma City Thunder en þar með var ekki listinn upptalinn.

Dion Waiters ýtti Manu Ginobili með olnboganum þegar hann var að taka innkastið en NBA segir að Ginobili hafi líka verið brotlegur með að stíga á hliðarlínuna.

NBA gaf það einnig út að San Antonio Spurs leikmennirnir Kawhi Leonard og Patty Mills hafi togað eða haldið leikmanni Oklahoma City Thunder þegar Spurs stal sendingunni hjá Dion Waiters úr innkastinu.

Að lokum átti Serge Ibaka hjá Thunder að fá villu fyrir að toga í treyju LaMarcus Aldridge og trufla þar með lokaskot leiksins. Hefði Aldridge fengið þessa villu þá var hann á leiðinni á vítalínuna þar sem hann gat tryggt Spurs-liðinu sigur og 2-0 forystu í einvíginu.

Aldridge var þarna kominn með 41 stig í leiknum og var búinn að hitta úr öllum tíu vítaskotum sínum.

Ekkert var hinsvegar dæmt og sumir körfuboltaspekingar voru ánægðir með að leikmennirnir hafi sjálfir gert út um leikinn en ekki fengið „hjálp" frá dómurum. NBA-deildin var hinsvegar ekki sammála en það er ekki gott fyrir dómara leiksins að fá slíka áfellisdóm frá yfirboðurum sínum.

Þriðji leikurinn er á föstudagskvöldið og fer hann frá á heimavelli Oklahoma City Thunder. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki í einvíginu kemst í úrslit Vesturdeildarinnar þar sem liðið mætir annaðhvort Golden State Warriors eða Potland Trail Blazers en Warriors-liðið er komið í 2-0.

Það er hægt sjá þessar lokasekúndur hér fyrir neðan sem og hvað Charles Barkley og strákarnir á TNT höfðu að segja um lok leiksins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×