Körfubolti

NBA í nótt: Tveir í röð hjá LeBron og Cavs | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James og Dion Waiters.
LeBron James og Dion Waiters. Vísir/Getty
Þetta lítur aðeins betur út hjá LeBron James og liðsfélögum hans í Cleveland Cavaliers eftir annan sannfærandi sigur liðsins í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Portland Trail Blazers (9 sigrar í röð), Golden State Warroirs (7 sigrar í röð), Toronto Raptors (6 sigrar í röð) og San Antonio Spurs (5 sigrar í röð) héldu öll sigurgöngunni áfram en fimm leikja sigurganga Denver Nuggets endaði í nótt.

LeBron James vantaði bara tvær stoðsendingar í þrennuna þegar Clevaland Cavaliers vann 113-87 sigur á Washington Wizards aðeins fimm dögum eftir vandræðalegt tap á móti Töframönnunum. LeBron James var með 29 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar á 36 mínútum í öðrum sigurleik Cavs í röð. Kevin Love skoraði 21 stig og Kyrie Irving var með 18 stig. Rasual Butler skoraði 23 stig fyrir Wizards.

Manu Ginobili skoraði 28 stig þegar San Antonio Spurs vann 106-100 sigur á Indiana Pacers en liðið vann án þjálfarans Gregg Popovich sem var að jafna sig eftir litla aðgerð. Ettore Messina stýrði liðinu í fjarveru Popovich. Ginobili spilaði á sínum tíma undir stjórn Messina hjá Bologna á Ítalíu og var í miklu stuði í nótt. Tony Parker skoraði 21 stig fyrir Spurs og Kawhi Leonard var með 21 stig og 13 fráköst í þessum fimmta sigri Spurs-liðsins í röð.

Stephen Curry skoraði 28 stig (sex þriggja stiga körfur) þegar Golden State Warriors fagnaði sínum sjöunda sigri í röð eftir 111-96 útisigur á Orlando Magic. Curry spilaði ekkert í fjórða leikhlutanum en Harrison Barnes var næststigahæstur hjá Golden State með 16 stig.

Tyson Chandler var með 17 stig og 25 fráköst í 109-102 sigri Dallas Mavericks í framlengingu á móti hans gömlu félögum í New York Knicks. Knicks-liðið lék án Carmelo Anthony í leiknum en J.R. Smith tryggði liðinu framlengingu 0,9 sekúndum fyrir leikslok. Jose Calderon skoraði 21 stig fyrir New York en öll stig hans komu úr þriggja stiga skotum.

Wesley Matthews var með 28 stig þegar Portland Trail Blazers vann sinn níunda sigur í röð með því að leggja Charlotte að velli, 105-97. Matthews hitti meðal annars úr 6 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Damian Lillard var með 22 stig og Robin Lopez bætti við 15 stigum og 10 fráköstum. Brian Roberts skoraði mest fyrir Charlotte eða 24 stig.  

Reggie Jackson skoraði 22 stig fyrir Oklahoma City Thunder sem endaði sex leikja taphrinu með 97-92 heimasigri á Utah Jazz. Gordon Hayward skoraði 24 stig fyrir Utah sem tapaði sínum fjórða leik í röð.

Gerald Green var með 24 stig fyrir Phoenix og Eric Bledsoe bætti við 20 stigum þegar Phoenix Suns endaði fimm leikja sigurgöngu Denver Nuggets með því að vinna Denver-liðið 120-112 í nótt. Rússinn Timofey Mozgov var með 18 stig og 13 fráköst fyrir Denver og Ty Lawson skoraði 17 stig og gaf 12 stoðsendingar.



Úrslitin úr öllum leikjum næturinnar í NBA:

Charlotte Hornets - Portland Trail Blazers     97-105          

Cleveland Cavaliers - Washington Wizards     113-87      

Orlando Magic - Golden State Warriors     96-111         

Philadelphia 76ers - Brooklyn Nets     91-99          

Dallas Mavericks - New York Knicks     109-102 (framlenging)     

Atlanta Hawks - Toronto Raptors     115-126          

Detroit Pistons - Los Anegels Clippers     98-104         

Houston Rockets - Sacramento Kings     102-89      

Minnesota Timberwolves - Milwaukee Bucks     86-103         

Oklahoma City Thunder - Utah Jazz     97-82         

San Antonio Spurs - Indiana Pacers     106-100          

Phoenix Suns - Denver Nuggets     120-112          

Los Anegels Lakers - Memphis Grizzlies     93-99     

Staðan í NBA-deildinni

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×