Körfubolti

NBA í nótt: Enn tapar Indiana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Paul George og félagar eru í basli.
Paul George og félagar eru í basli. Vísir/AP
Efsta lið austurdeildarinnar, Indiana Pacers, lenti aftur undir í rimmu sinni gegn Atlanta Hawks í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Atlanta vann þriðja leik liðanna í nótt, 98-85, á heimaveli og er komið með 2-1 forystu. Atlanta vann óvæntan sigur í fyrsta leik rimmunnar.

Jeff Teague setti niður umdeildan þrist fyrir Atlanta þegar lítið var eftir en hann virtist hafa stigið út af vellinum skömmu áður. Karfan var þó dæmd gild.

Kyle Korver kláraði svo leikinn með því að setja niður þrist og koma Atlanta tólf stigum yfir þegar rúm mínúta var eftir.

Teague var með 22 stig og Korver 20 en stigahæstur hjá Indiana var Lance Stephenson með 21 stig. Paul George (3/11) og George Hill (1/11) hittu skelfilega í leiknum og voru langt frá sínu besta.



Oklahoma City, sem lenti í öðru sæti austurdeildarinnar, er einnig í basli í sinnu rimmu en liðið tapaði fyrir Memphis í framlengdum leik í nótt, 98-95.

Memphis tók þar með 2-1 forystu í rimmunni en þetta er í annað sinn í röð sem liðið vinnur í framlengingu.

Memphis var þó með væna forystu í upphafi fjórða leikhluta en missti hana niður á síðustu mínútum leiksins. Liðið komst þó í framlengingu þar sem Courtney Lee kláraði leikinn af vítalínunni.

Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu 30 stig hvor fyrir Oklahoma City. Þess má geta að Westbrook tryggði sínum mönnum framlengingu með fjögurra stiga kerfi í lok venjulegs leiktíma - rétt eins og Durant gerði í síðasta leik.

Durant nýtti tíu af 27 skotum sínum í leiknum - þar af ekkert í átta þriggja stiga tilraunum - og Westbrook níu af 26.



LA Clippers vann Golden State, 98-96, og tók þar með 2-1 forystu í einvíginu. Blake Griffin skoraði 32 stig fyrir Clippers. Klay Thompson skoraði 26 stig fyrir Golden State og Steph Curry sextán.

Úrslit næturinnar:

Atlanta - Indiana 98-85 (2-1)

Memphis - Oklahoma City 98-95 (2-1)

Golden State - LA Clippers 96-98 (1-2)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×