Körfubolti

NBA: Þrír leikmenn Atlanta Hawks valdir í Stjörnuleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jeff Teague er einn af þeim sem eru í Stjörnuleiknum í fyrsta sinn.
Jeff Teague er einn af þeim sem eru í Stjörnuleiknum í fyrsta sinn. Vísir/Getty
NBA-deildin tilkynnti í nótt hvaða 24 leikmenn mun spila Stjörnuleikinn sem fer fram í New York 15. febrúar næstkomandi en viku fyrr kom í ljós hvaða leikmenn fengu flest atkvæði í kosningunni og byrja því leikinn.

Atlanta Hawks liðið hefur unnið 17 leiki í röð og liðið á líka þrjá leikmenn í Stjörnuliði Austurdeildarinnar eða þá Al Horford, Paul Millsap og Jeff Teague. Ekkert lið í deildinni á fleiri leikmenn í Stjörnuleiknum í ár. Þriggja stiga skyttan Kyle Korver gat jafnvel orðið sá fjórði en var ekki valinn.

Chris Bosh og Dwyane Wade hjá Miami Heat voru báðir valdir í liðið en Kevin Love hjá Cleveland Cavaliers þykir ekki nægilega góður fyrir stjörnulið Austurdeildarinnar.

Kevin Durant og Russell Westbrook, leikmenn  Oklahoma City Thunder, komust báðir í liðið þrátt fyrir að hafa misst af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Damian Lillard, bakvörður Portland Trail Blazers, var ekki valinn í liðið sem vekur furðu margra enda frábær leikmaður sem fer fyrir þriðja besta liði Vesturdeildarinnar. Kobe Bryant er meiddur og því gæti Lillard verið tekinn inn fyrir hann en Adam Silver, yfirmaður deildarinnar, ákveður hvaða varamaður kemur inn.

Skvettubræðurnir Stephen Curry og Klay Thompson hjá Golden State Warriors eru að sjálfsögðu báðir í liðinu. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1993 (Chris Mullin og Tim Hardaway) sem Golden State Warriors á tvo leikmenn í Stjörnuleiknum.

Hér fyrir neðan má sjá liðin í stjörnuleiknum. Varamennirnir eru valdir út frá kosningu þjálfar í viðkomandi deild. Þeir mega þó ekki kjósa eigin leikmenn.

Tim Duncan var valinn í Stjörnleikinn í fimmtánda sinn og jafnaði þar með þá Shaquille O'Neal og Kevin Garnett. Kareem Abdul-Jabbar var 19 sinnum valinn í Stjörnuleikinn á sínum tíma og Kobe Bryant nú í 17. sinn.



Stjörnulið Austurdeildarinnar:

Byrjunarliðið

John Wall, Washington Wizards

Kyle Lowry, Toronto Raptors [Nýliði]

LeBron James, Cleveland Cavaliers

Pau Gasol, Chicago Bulls

Carmelo Anthony, New York Knicks

Varamenn:

Al Horford, Atlanta Hawks

Chris Bosh, Miami Heat

Paul Millsap, Atlanta Hawks     

Jimmy Butler, Chicago Bulls  [Nýliði]

Dwyane Wade, Miami Heat     

Jeff Teague, Atlanta Hawks  [Nýliði]

Kyrie Irving, Cleveland Cavaliers

    

Þjálfari: Mike Budenholzer (Atlanta Hawks)



Stjörnulið Vesturdeildarinnar:

Byrjunarliðið

Stephen Curry, Golden State Warriors     

Kobe Bryant, Los Angeles Lakers     

Anthony Davis, New Orleans Pelicans     

Marc Gasol, Memphis Grizzlies     

Blake Griffin, Los Angeles Clippers     

Varamenn:

LaMarcus Aldridge, Portland Trail Blazers     

Tim Duncan, San Antonio Spurs     

Kevin Durant, Oklahoma City Thunder     

Klay Thompson, Golden State Warriors [Nýliði] 

Russell Westbrook, Oklahoma City Thunder     

James Harden, Houston Rockets     

Chris Paul, Los Angeles Clippers

Þjálfari: Steve Kerr (Golden State Warriors)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×