Körfubolti

NBA: Pelíkanarnir enduðu sjö leikja sigurgöngu Boston | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anthony Davis var frábær í sigrinum á Boston.
Anthony Davis var frábær í sigrinum á Boston. Vísir/Getty
Sjö leikja sigurganga Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta endaði í nótt eftir framlengdan leik. Orlando Magic tókst hinsvegar að enda sjö leikja taphrinu sína og Portland Trail Blazers vann eftir þrjá tapleiki í röð.





Anthony Davis var með 45 stig og 16 fráköst þegar New Orleans Pelicans vann 116-113 útisigur á Boston Celtics í framlengdum leik. Pelíkanarnir unnu upp fimm stiga forystu á lokamínútum venjulegs leiktíma og tryggðu sér síðan sigur í framlengingu í annað skiptið á þremur dögum.

Á sunnudaginn var skoraði Davis 48 stig í útisigri á New York Knicks en sá leikur var líka framlengdur. DeMarcus Cousins skoraði 19 stig og tók 15 fráköst en Jrue Holiday var með 23 stig og 7 stoðsendingar.

Kyrie Irving var stigahæstur hjá Boston liðinu með 27 stig en bætti við 14 stigum og 9 fráköstum. Marcus Smart og Jaylen Brown skoruðu báðir sextán stig en það vakti athygli að Boston liðið reyndi alls 50 þriggja stiga skot í leiknum.





Evan Fournier skoraði 32 stig fyrir Orlando Magic í 108-102 sigri á Minnesota Timberwolves en Magic liðið endaði með því sjö leikja taphrinu. Orlando liðið skoraði 35 stig í lokaleikhlutanum eftir að hafa verið tveimur stigum undir eftir þrjá fyrstu leikhlutana. Jimmy Butler var stigahæstur hjá Timberwolves með 28 stig en liðið var búið að vinna fimm leiki í röð fyrir þennan leik.

Nikola Jokic var með 29 stig og 18 fráköst þegar Denver Nuggets vann 105-102 sigur á Dallas Mavericks. Gary Harris bætti við 25 stigum og Will Barton var með 22 stig. Dennis Smith Jr. var stigahæstur hjá Dallas með 25 stig en Harrison Barnes skoraði 17 stig.



 

Damian Lillard skoraði 31 stig fyrir Portland Trail Blazers í 118-111 heimasigri á Phoenix Suns en Portland-liðið var búið að tapa þremur leikjum í röð. CJ McCollum bætti við sex þristum og 27 stigum. Devin Booker var með 43 stig fyrir Phoenix liðið en það dugði ekki til og liðið tapaði sínum þriðja leik í röð.



 

Úrslit úr öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt:

Portland Trail Blazers - Phoenix Suns    118-111    

Denver Nuggets - Dallas Mavericks    105-102    

Boston Celtics - New Orleans Pelicans    113-116 (104-104)    

Orlando Magic - Minnesota Timberwolves    108-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×