Körfubolti

NBA: Kyrie Irving skoraði 55 stig í fjarveru LeBrons | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James fagnar hér Kyrie Irving í nótt.
LeBron James fagnar hér Kyrie Irving í nótt. Vísir/Getty
Cleveland Cavaliers lék án LeBron James í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en það kom þó ekki í veg fyrir að liðið héldu sigurgöngu sinni áfram. Cleveland getur þakkað einum manni sem setti nýtt stigamet hjá leikmanni á tímabilinu. Atlanta Hawks vann sinn sautjánda leik í röð í nótt, New York Knicks er farið að vinna leiki en ekkert gengur þessa dagana hjá Dallas Mavericks.

Kyrie Irving skoraði 55 stig í Cleveland í 99-94 sigri á Portland Trail Blazers sem er það hæsta sem leikmaður hefur skoraði í einum leik í NBA-deildinni í vetur en Irving sló með þessu stigamet Allen Iverson í höllinni. LeBron James meiddist á úlnlið kvöldið áður og var ekki með í leiknum.

Þetta var áttundi sigur Cleveland Cavaliers í röð en Kyrie Irving var með 38 stig í sigri kvöldið áður. Kyrie Irving klikkaði reyndar á sjö fyrstu skotum sínum í leiknum en endaði á því að skora 11 þriggja stiga körfur og skora 24 af síðustu 28 stigum liðsins.

Kyrie Irving hitti úr 17 af 36 skotum sínum þar af 11 af 19 fyrir utan þriggja stiga línuna. Hann setti niður öll tíu vítin sín og gaf einnig 5 stoðsendingar. Rússneski miðherjinn Timofey Mozgov var næststigahæstur hjá Cavs með 12 stig en LaMarcus Aldridge skoraði 38 stig og tók 11 fráköst fyrir Portland

Paul Millsap var með 28 stig og 15 fráköst þegar Atlanta Haeks vann 113-102 sigur á Brooklyn Nets og fagnaði þar með sautjánda sigri sínum í röð. Hawks-liðið hefur nú unnið 31 af 33 leikjum sínum og er komið með sjö leikja forskot í Austurdeildinni.

Tony Parker skoraði 17 stig, Danny Green var með 16 stig og Tim Duncan bætti við 12 stigum og 14 fráköstum þegar San Antonio Spurs vann Charlotte Hornets 95-86. Þetta var sjötti heimasigur Spurs-liðsins í röð.

Carmelo Anthony var með 31 stig og 10 fráköst þegar New York Knicks vann 100-92 sigur á Oklahoma City Thunder en New York liðið er búið að vinna fjóra af síðustu fimm leikjum sínum. Langston Galloway skoraði 18 stig fyrir Knicks og Lance Thomas var með 17 stig á móti sínum gamla félagi. Russell Westbrook skoraði 40 stig fyrir Thunder en liðið lék annan leikinn í röð án Kevin Durant.

Josh Smith skoraði 18 stig og James Harden var með 17 stig þegar Houston Rockets vann 99-94 sigur á Dallas Mavericks en Houston lék án miðherjans Dwight Howard. Houston vann þarna sinn þriðja sigur í röð en þetta var aftur á móti fjórða tap Dallas-liðsins í röð. Monta Ellis var stigahæstur hjá Dallas með 33 stig.



Öll úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Cleveland Cavaliers - Portland Trail Blazers 99-94

Philadelphia 76ers - Detroit Pistons 89-69

Toronto Raptors - Sacramento Kings 119-102

Atlanta Hawks - Brooklyn Nets 113-102

Houston Rockets - Dallas Mavericks 99-94

Minnesota Timberwolves - Boston Celtics 110-98

New Orleans Pelicans - Denver Nuggets 85-93

New York Knicks - Oklahoma City Thunder 100-92

San Antonio Spurs - Charlotte Hornets 95-86

Utah Jazz - Los Angeles Clippers 89-94 Slut

Phoenix Suns - Washington Wizards 106-98

Staðan í NBA-deildinni

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×