Körfubolti

NBA: Crawford með 19 stig í endurkomu Clippers í fjórða | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jamal Crawford.
Jamal Crawford. Vísir/Getty
Los Angeles Clippers vann sinn fimmta sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, Anthony Davis átti enn einn stórleikinn með New Orleans Pelicans og Oklahoma City Thunder vann án Kevin Durant.

Jamal Crawford skoraði 19 af 23 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þegar Los Angeles Clippers vann 102-98 endurkomusigur á Denver Nuggets en þetta var fimmti sigurleikur Clippers-liðsins í röð.

Matt Barnes skoraði 18 stig fyrir Clippers, Blake Griffin var með 14 stig, 9 fráköst og 10 stoðsendingar og Chris Paul skoraði 15 stig.

Denver Nuggets var átta stigum yfir fyrir lokaleikhlutann en varð að sætta sig við sjöunda tapið í röð. Ty Lawson var með 19 stig og 11 stoðsendingar hjá Denver og þeir Arron Afflalo og Wilson Chandler skoruðu 18 stig.

Anthony Davis fór fyrir fjórða sigri New Orleans Pelicans í röð en Pelíkanarnir unnu þá 99-74 sigur á Philadelphia 76ers. Davis var með 32 stig, 10 fráköst og 4 varin skot í leiknum en Pelicans-liðið hefur ekki unnið fleiri leiki í röð á þessu tímabili.

Ryan Anderson skoraði 18 stig fyrir New Orleans Pelicans, Eric Gordon var með 13 stig og Tyreke Evans gaf 12 stoðsendingar annað kvöldið í röð. K.J. McDaniels skoraði 16 stig í sjötta tapi Philadelphia 76ers í röð.

Russell Westbrook var með 18 stig þegar Oklahoma City Thunder vann 92-84 heimasigur á Minnesota Timberwolves en Thunder lék án Kevin Durant sem meiddist í tapinu á móti Cleveland Cavaliers kvöldið áður.

Westbrook skoraði 11 stig í fjórða leikhlutanum þar sem hann hitti úr 4 af 6 skotum sínum. Serge Ibaka bætti við 13 stigum og 19 fráköstum. Nýliðinn Andrew Wiggins skoraði 23 stig fyrir Minnesota Timberwolves og Thaddeus Young var með 22 stig.

Zach Randolph var með 24 stig og 10 fráköst og Marc Gasol bætti við 16 stigum og 10 fráköstum þegar Memphis Grizzlies vann 103-94 heimasigur á Orlando Magic. Þetta var þriðji sigur Grizzlies-liðsins í röð á sama tíma og Orlando varð að sætta sig við sjötta tapið í röð. Nikola Vucevic var með 18 stig og 12 fráköst fyrir Orlando Magic.

Tayshaun Prince skoraði 19 stig fyrir Boston Celtics sem vann 99-90 útisigur á Utah Jazz. Prince kom til Boston frá Memphis 12. janúar síðastliðinn sem hluti af þriggja liða leikmannaskiptum og átti sinn besta leik með sínu nýja liði. Gordon Hayward skoraði 26 stig fyrir Utah en það dugði lítið.

Það þurfti að fresta báðum heimaleikjum New York liðanna í gær vegna snjóstorms sem gekk yfir borgina í nótt.

Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Brooklyn Nets - Portland Trail Blazers    Frestað    

New York Knicks - Sacramento Kings    Frestað

Memphis Grizzlies - Orlando Magic     103-94         

New Orleans Pelicans - Philadelphia 76ers     99-74          

Oklahoma City Thunder - Minnesota Timberwolves     92-84         

Utah Jazz - Boston Celtics     90-99     

Los Angeles Clippers - Denver Nuggets     102-98     

Staðan í NBA-deildinni

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×