Handbolti

Naumur sigur Króata | Öruggt hjá Spánverjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Joan Cañellas skoraði þrjú mörk fyrir Spán gegn Túnis.
Joan Cañellas skoraði þrjú mörk fyrir Spán gegn Túnis. vísir/getty
Króatía vann nauman sigur, 26-25, á Brasilíu í 16-liða úrslitum á HM í Katar í dag og tryggði sér þar með sæti í 8-liða úrslitunum þar sem Króatar mæta annað hvort Póllandi eða Svíþjóð.

Brasilíumenn hafa spilað vel á HM og héldu því áfram gegn Króötum sem unnu alla sína leiki í B-riðli.

Króatía byrjaði leikinn betur og eftir þriggja mínútna leik var staðan 4-1. Brasilíumenn unnu sig inn í leikinn og komust í fyrsta sinn yfir, 8-9, um miðjan fyrri hálfleik.

Þeir áttu svo góðan endasprett í fyrri hálfleik og breyttu stöðunni úr 12-11 í 13-15 á síðustu fimm mínútum hálfleiksins.

Óhætt er að segja að Luis Ricardo Nascimento, markvörður Brasilíu, hafi stolið senunni í fyrri hálfleiks en hann varði þrjú vítaköst frá leikmönnum Króatíu, eða öll þau vítaskot sem hann reyndi við.

Króatar mættu ákveðnir til leiks eftir hlé, skelltu í lás í vörninni, skoruðu fimm fyrstu mörk í seinni hálfleiks og komust í 18-15.

En Brasilíumenn brotnuðu ekki, jöfnuðu og náðu forystunni á nýjan leik. Liðin héldust í hendur það sem eftir lifði leiks en Króatar reyndust sterkari á svellinu undir lokin. Igor Karacic og Domagoj Duvnjak komu Króatíu tveimur mörkum yfir, 26-24.

Brasilía náði að minnka muninn í eitt mark, 26-25, en nær komst liðið ekki og Króatar eru því komnir í 8-liða úrslitin.

Duvnjak, Manuel Strlek og Marco Kopljar voru markahæstir í liði Króatíu með fjögur mörk hver en þrír leikmenn komu næstir með þrjú mörk hver.

Joao Silva skoraði fimm mörk fyrir Brasilíu.

Í Lusail Sports Arena mættust Spánn og Túnis. Það var leikur kattarins að músinni en Spánverjar unnu auðveldan átta marka sigur, 28-20.

Helmingsmunur var á liðunum í hálfleik, 18-9, en varnarleikur heimsmeistaranna var öflugur og Gonzalo Pérez de Vargas átti góðan leik í markinu.

Túnismenn héldu í við Spánverja í seinni hálfleik og unnu hann 10-11. Spánverjar unnu samt sem áður þægilegan átta marka sigur, 28-20 og mæta annað hvort Íslandi eða Danmörku í 8-liða úrslitunum.

Cristian Ugalde var markahæstur hjá Spánverjum með sjö mörk en Raúl Entrerríos, Joan Cañellas, Antonio García og Víctor Tomás komu næstir með þrjú mörk hver.

Oussama Boughanmi skoraði mest í liði Túnis, eða fimm mörk.


Tengdar fréttir

Patrekur og félagar úr leik

Heimamenn í Katar eru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir tveggja marka sigur, 29-27, á lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×