Handbolti

Naumur sigur hjá Löwen

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þýskalandsmeistarar lentu í kröppun dansi gegn Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikurinn var afar spennandi en Löwen hafði sigur að lokum, 24-25.

Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Löwen í leiknum en Guðjón Valur Sigurðsson var ekki með liðinu að þessu sinni.

Löwen hoppaði upp í þriðja sætið með sigrinum en liðið er með átta stig eins og Kiel. Flensburg er á toppnum með fullt hús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×