Handbolti

Naumur sigur Arnórs og félaga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/AFP
Arnór Atlason skoraði tvö mörk er lið hans, Saint Raphael, vann góðan útisigur á Istres, 33-32, í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Saint Raphael leiddi lengst af en heimamenn voru þó ekki langt undan og botnlið Istres nálægt því að jafna metin í lokin.

Sélestat tapaði hins vegar á heimavelli fyrir Dunkerque, 24-27, þar sem Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir fyrrnefnda liðið, þar af þrjú af vítalínunni.

Saint Raphael er í fjórða sæti deildarinnar með níu stig en Sélestat er í því ellefta með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×