Fótbolti

Naumt tap Nordsjælland

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur Kristjánsson er við stjórnvölinn hjá Nordsjælland.
Ólafur Kristjánsson er við stjórnvölinn hjá Nordsjælland. vísir/ernir

Nordsjælland tapaði 1-0 fyrir Randers í eina leik dagsins í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfar Nordsjælland.

Eina mark leiksins kom á 27. mínútu. það geri Piotr Parzyszek fyrir Randers eftir undirbúning frá Johnny Thomsen. Lokatölur 1-0.

Guðmundur Þórarinsson var tekinn af velli á 84. mínútu, en Nordsjælland er í sjöunda sæti deildarinnar með 22 stig.

Þetta var annar tapleikur Nordsjælland í röð og þriðji tapleikurinn í síðustu fjórum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×