Handbolti

Naumt tap hjá Kristianstad

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. vísir/daníel
Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar í sænska liðinu Kristianstad eru á leiðinni í oddaleik í átta liða úrslitum deildarinnar.

Kristianstad tapaði naumlega í kvöld, 25-24, gegn Hammarby og staðan í einvígi liðanna er því 2-2. Oddaleikurinn fer fram á heimavelli Kristianstad.

Ólafur komst ekki á blað í leiknum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×