Körfubolti

Naumt tap hjá Elvari og félögum í úrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson í leik með Njarðvík áður en hann fór út í skóla.
Elvar Már Friðriksson í leik með Njarðvík áður en hann fór út í skóla. Vísir/Daníel
Elvar Már Friðriksson og félagar í Barry-háskólunum urðu að sætta sig við silfur í Sunshane State deildinni sem er hluti af 2. deild bandaríska háskólaboltans í körfubolta.

Barry mætti Eckerd í úrslitaleiknum en tapaði með þriggja stiga mun, 87-84. Eckerd var með tíu stiga forystu í hálfleik en Elvar og hans félagar gáfust ekki upp og unnu sig inn í leikinn.

Elvar Már Friðriksson fékk síðan tækifæri til að þess að koma leiknum í framlengingu en klikkaði á lokaskoti leiksins.

Elvar hefur oft hitt miklu metur en hann gerði í kvöld en aðeins 3 af 12 skotum hans rötuðu rétta leið.

Elvar var með 9 stig, 8 stoðsendingar og 1 stolinn bolta á 31 mínútu. Hann var stoðsendingahæstur á vellinum.

Yunio Barrueta skoraði 22 stig fyrir Barry en liðið átti í vandræðum með E.J. Moody sem var með 19 sitg, 6 fráköst og 7 stoðsendingar í úrslitaleiknum.

Elvar Már Friðriksson átti mjög flott fyrsta tímabil með Barry-háskólunum en hann var kosinn nýliði ársins og enginn í 2. deildinni gaf fleiri stoðsendingar en hann.



 


Tengdar fréttir

Elvar nýliði ársins og setti skólamet

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur átt góðu gengi að fagna með liði Barry í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum í vetur.

Elvar og félagar í úrslit

Elvar Már Friðriksson og félagar í Barry University eru komnir í úrslit Sunshine State deildarinnar í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×