Handbolti

Nauðsynlegur sigur Arons og félaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron og félagar eiga enn möguleika á að komast í undanúrslitin um danska meistaratitilinn.
Aron og félagar eiga enn möguleika á að komast í undanúrslitin um danska meistaratitilinn. vísir/getty
Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Aalborg unnu nauðsynlegan sigur á Kolding, 26-22, í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn í handbolta í kvöld.

Aalborg á því enn möguleika á að komast í undanúrslitin en strákarnir hans Arons mæta Skjern í lokaumferð riðilsins á sunnudaginn.

Janus Daði Smárason og Stefán Rafn Sigurmannsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Aalborg í kvöld. Bæði mörk þess síðarnefnda komu af vítalínunni.

Arnór Atlason lagði eitt mark í púkkið fyrir Aalborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×