Innlent

Nauðsynlegt að vera vakandi yfir ebólusmiti

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp/anton brink
Versti ebólafaraldur sögunnar geisar nú í Vestur-Afríku og hafa hátt í sjö hundruð manns látist af hans völdum. Leiðtogar víðs vegar um heiminn hafa lýst yfir áhyggjum vegna mögulegrar heimsútbreiðslu en Guðrún Sigmundsdóttir, staðgengill sóttvarnarlæknis, segir ekki miklar líkur á að faraldurinn berist til Íslands. Hér sé þróað heilbrigðiskerfi og auðvelt að koma í veg fyrir hugsanleg smit. Þó sé nauðsynlegt að vera vakandi yfir hugsanlegum smitum.

„Þetta er stórmál í þessum löndum. Það eru margir að smitast og veikjast en þar er þetta bara svo allt öðruvísi en hér. Hér eigum við miklu betri möguleika á að stöðva smit,“ segir Guðrún.

Ebólan smitast einungis með snertismiti, þ.e komist fólk í snertingu við líkamsvessa af einhverju tagi. Ebólan er það banvæn að hún nánast lokar fyrir smitleiðir þar sem sextíu til níutíu prósent smitaðra eru látnir átta til tólf dögum eftir smit. Meðgöngutíminn getur verið hátt í þrjár vikur og er fólk einkennalaust á meðan þeim tíma stendur.

Búið er að grípa til aukinna ráðstafanna á alþjóðaflugvöllum á nokkrum stöðum í Afríku, en Guðrún segir þess ekki þurfa á Keflavíkurflugvelli. Litlar líkur séu á að hinn almenni ferðamaður veikist.

„Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur ekki mælt með neinu slíku og við fylgjum því sem þeir segja. Það þarf kannski að vera meira vakandi yfir, og bregðast við, ef svo vildi til að einhver kæmi hingað veikur. En líkur á að venjulegir ferðamenn veikist eru litlar,“ segir Guðrún.

Til að smitast af ebólu þarf meðal annars að komast í beina snertingu við blóð eða aðra líkamsvessa frá einstaklingi sem er með einkenni ebólusýkingar eða er látinn af völdum hennar. Einnig með snertingu við lifandi eða dauð villt dýr og óvörðum kynmökum við einstakling með ebólusýkingu.

Helstu einkenni eru hefðbundin flensueinkenni og fylgja þessu oft uppköst, niðurgangur og útbrot. Loks eru það skemmdir í milta, nýrum og lungum og rauð útbrot fara að myndast. Þá blæðir loks úr flestum líkamsopum. Engin sértæk meðferð eða bóluefni er til við sjúkdómnum og miðar meðferðin að því að draga úr einkennum.

„Við getum þó aldrei útilokað að veikir einstaklingar komi hingað til lands. Af því að þetta er svo alvarlegt þá þarf að vera vakandi. Því var sendur út tölvupóstur á heilbrigðisþjónustu auk þess sem við birtum reglulega fréttir á heimasíðunni okkar,“  segir Guðrún að lokum.


Tengdar fréttir

Ebóla berst til Nígeríu

Stjórnvöld í Nígeríu hafa staðfest að líberskur maður hefði látist úr Ebóluveiru þar í landi, fjölmennasta ríki í Afríku.

Hætta ferðamanna á smiti hverfandi

Ekkert lát er á sýkingahrinunni af völdum ebólaveiru sem hófst í Gíneu í byrjun febrúar á þessu ári, að því er fram kemur á vef Landlæknisembættisins.

Tveir Bandaríkjamenn greinast með Ebóla

Fjölmargir læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn sem vinna að meðhöndlun ebólufaraldursins í Vestur-Afríku hafa greinst með veiruna.

Bretar óttast ebólufaraldur

Ebólaveira er alvarleg ógn við Bretland að sögn Philip Hammond, utanríkisráðherra landsins.

Ebóla-faraldurinn stjórnlaus

Ebóla-faraldurinn sem geisar í þremur löndum í Vestur-Afríku er orðinn stjórnlaus, að sögn samtakanna Læknar án landamæra.

Hæsta viðbúnaðarstigi lýst yfir

Yfirvöld í Nígeríu hafa lýst yfir hæsta viðbúnaðarstigi eftir að karlmaður frá Líberíu lést úr ebólu þar í landi í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×