Innlent

Nauðsynlegt að gera breytingar á búvörusamningum

Höskuldur Kári Schram skrifar
Lilja Rafney Magnúsdóttir varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir nauðsynlegt að gera verulega breytingar á búvörusamningum til að hægt verði að skapa sátt um málið. Hún vill fresta gildistöku á sauðfjárhlutanum, endurskoða tollamál og styrkja endurskoðunarákvæði samninganna.

Sigurður Ingi Jóhannsson þáverandi landbúnaðarráðherra undirritaði búvörusamninga í febrúarmánuði síðastliðnum með fyrirvara um samþykki Alþingis.

Bændur samþykktu samninga fyrir sitt leyti í atkvæðagreiðslu sem lauk í lok marsmánaðar en Alþingi á enn eftir að afgreiða máilð.

Samningarnir eru afar umdeildir. Félag atvinnurekenda telur að ráðherra hafi mögulega brotið lög þegar hann undirritaði samningana og Samtök verslunar og þjónustu efast um að þeir standist stjórnarskrá. Samningarnir eru ennfremur sagðir grafa undan samkeppni í mjólkuriðnaði og svínabændur hafa gagnrýnt tollahlutann harðlega. Þrátíu og sjö prósent sauðfjárbænda greiddu atkvæði gegn samningunum.

Atvinnuveganefnd fundaði um málið í gær en Jón Gunnarsson formaður nefndarinnar sagðist í hádegisfréttum Bylgjunnar á sunnudag vonast til þess að hægt verði að skapa sátt um málið og útilokaði ekki breytingar.



Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður vinstri grænna og varaformaður nefndarinnar segir nauðsynlegt að taka mið af þeirri gagnrýni sem hefur komið fram meðal annars varðandi tollamál.

„Og ég tel að þessi búvörusamningur eins og hann liggur fyrir er ekki nógu góður. Og spurning um hvort það mætti fresta sauðfjárhlutanum. Hann rennur ekki úr gildi fyrr en eftir ár og skoða þann hluta betur,“ segir Lilja.

Þá vill hún einnig styrkja endurskoðunarákvæði samninganna en nú gert ráð fyrir því að þeir verði endurskoðaðir árið 2019 og aftur árið 2023.

„Það verður að vera eitthvað gagna af þeim. Ekki bara að það sé endurskoðað og það sé ekki neinn möguleiki að gera neinar breytingar,“ segir Lilja. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×