Nauðsynlegt að breyta reglum hjá VG 10. febrúar 2010 12:04 MYND/Hörður
Formaður kjörstjórnar Vinstri grænna segir nauðsynlegt að breyta kosningareglum flokksins í ljósi þeirrar kvörtunar sem barst eftir forval Vinstri grænna í Reykjavík um síðustu helgi. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sendi inn kæru til kjörstjórnar flokksins um síðustu helgi. Taldi hann víst að stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur hefðu beitt ólögmætum aðferðum til að afla utankjörfundaratkvæða. Þorleifur hafnaði í öðru sæti í forvalinu en Sóley í því fyrsta en aðeins munaði 40 atkvæðum. Krafðist Þorleifur þess að öll utankjörfundaratkvæði yrðu dæmd ógild. Það hefði þó ekki haft áhrif á röð efstu manna. Kjörstjórn hafnaði kröfum Þorleifs þar sem sýnt þótti að stuðningsmenn Sóleyjar hefðu ekki beitt ólögmætum aðgerðum. Stefán Pálsson, yfirmaður kjörstjórnar Vinstri grænna, segir hins vegar ljóst að breyta þurfi kosningareglum flokksins. „Ég held að það sé alveg ótvírætt," segir Stefán en tekur fram að reglurnar hafi dugað vel í síðustu forvölum. Þá megi reyndar hafa í huga að að þar voru leikar ekki eins jafnir og núna. Ýmsar sögur hafa verið í gangi um að fulltrúar kjörstjórnar hafi beitt sér sérstaklega í þágu eins frambjóðenda. Þegar Stefán er spurður hvort eitthvað slíkt mál hafi komið inn á borð kjörstjórnar neitar hann því. „Það koma sögur sem fara á kreik eftir forvöl og kjaftagangurinn stundum með hreinum ólíkindum en við höfum ekki fengið neitt slíkt inn á okkar borð."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira