Innlent

Nauðganir verða ekki liðnar á Bestu hátíðinni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hljómsveitin Quarashi spilar á Bestu hátíðinni. Mynd/ ÞÖK
Hljómsveitin Quarashi spilar á Bestu hátíðinni. Mynd/ ÞÖK
Ofbeldi, og sér í lagi kynferðislegt ofbeldi, verður ekki liðið á Bestu hátíðinni sem fram fer um næstu helgi. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá aðstandendum Bestu hátíðarinnar og hljómsveitarinnar Quarashi, sem spilar á hátíðinni. Quarashi hætlar að gefa Stígamótum 500 þúsund krónur af þeim tekjum sem hún hefur af því að koma fram á hátíðinni. Hátíðin fer fram um næstu helgi.

„Þar sem nú stefnir í að allt að 10 þúsund manns muni safnast saman á Bestu útihátíðinni er það draumur hátíðarhaldara og þeirra hljómsveita sem þar koma fram að allir geti gengið frá stoltir og ánægðir. En umfram allt er það draumur allra að þeir sem hátíðina sækja geti sýnt og sannað að gróf ofbeldisbrot þurfa ekki að vera fastur fylgihlutur útihátíða á borð við þessa," segir í yfirlýsingu frá Quarashi og aðstandenum Bestu hátíðarinnar.

„Ein nauðgun, eitt ofbeldisverk er einu of mikið," bæta þau við.



Yfirlýsingin frá Bestu hátíðinni og Quarashi hljóðar svo í heild sinni:

Oft á ári berast fregnir af því að ein eða fleiri nauðganir hafi átt sér stað á skemmtunum og útihátíðum og jafn oft er þessum ofbeldisverkum lýst í fjölmiðlum á þá leið að um "leiðinda atvik á annars glæsilegri hátíð" hafi átt sér stað. Forsvarsmenn Bestu hátíðarinnar, hljómsveitin Quarashi, sem og aðrar hljómsveitir sem þar koma fram, vilja leggja þunga áherslu á að ofbeldi og sér í lagi kynferðislegt ofbeldi, verði ekki liðið á hátíðinni.

 

Þar sem nú stefnir í að allt að 10 þúsund manns muni safnast saman á Bestu útihátíðinni er það draumur hátíðarhaldara og þeirra hljómsveita sem þar koma fram að allir geti gengið frá stoltir og ánægðir. En umfram allt er það draumur allra að þeir sem hátíðina sækja geti sýnt og sannað að gróf ofbeldisbrot þurfa ekki að vera fastur fylgihlutur útihátíða á borð við þessa. "Ein nauðgun, eitt ofbeldisverk er einu of mikið."

 

Nei hópurinn hefur verið starfandi síðan 2003 og hefur frá upphafi sótt útihátíðir til þess að vekja athygli á alvarleika nauðgana og fyrirbyggja að slík ofbeldisverk séu framin. Forsvarsmenn Bestu útihátíðarinnar eru Nei-hreyfingunni þakklátir fyrir hún hyggst mæta á hátíðina og verð öllum hátíðargestum sýnileg og að boðskapur hreyfingarinnar verði sem fyrirferðarmestur innan um alla tónlistina og gleðina.

Þá hyggst hljómsveitin Quarashi gefa Stígamótum 500 þúsund krónur af þeim tekjum sem hún hefur af því að koma fram.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×