Innlent

Náttúrupassinn hentar illa landeigendum

Linda Blöndal skrifar
Örn Bergsson, formaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi segir þá í fullum lagalegum rétti til að innheimta sjálfir gjöld komi ekki til nein önnur leið sem sé betri en sú sem nú er boðuð.

Landeigendur eru um fimm hundruð talsins og jarðir þeirra nærri sex þúsund, af ólíkum stærðum og gæðum. Þeir hafa lagt til aðrar leiðir til að fjármagna vernd og uppbyggingu minni ferðamannastaða. Annað hvort að gjald yrði tekið á stærstu ferðamannastöðum ríkisins sem rynni í sameiginlegan sjóð og að hluta til landeigenda, eða að hluti komugjalda fari til þeirra.

Óbreyttur réttur til að taka gjald

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráherra mælti fyrir frumvarpi um náttúrupassa í gær. Örn segir að frumvarpið breyti ekki neinu um rétt landeigenda til að taka sjálfir gjald á sínum stöðum sem þeir geti gert komi ekki til gjaldtökuleið sem sé betur framkvæmanleg fyrir þá. Náttúrupassinn gildir fyrir alla staði í eigu ríkisins og sveitarfélaga og býðst landeigendum að gerast aðili að honum.

Passinn ekki aðgengileg leið 

Svona fljótt á litið sýnist mér að, eins og þetta er lagt fram að þetta sé ekki aðgengilegt fyrir landeigendur en það hefur bara ekkert verið rætt við okkur, sagði Örn í fréttum Stöðvar 2 í kvöld um frumvarpið. „Það liggur ekkert fyrir hvaða fjármuni einstaka landeigendur fengju út úr þessu til að byggja upp staði“, sagði Örn sem er bóndi á Hofi í Öræfum. 

Hin frjálsa för

Ein helsta gagnrýni á frumvarpið snýr að lögbundnum almannarétti Íslendinga til frjálsrar farar um landið. Örn segir landeigendur vilja vernda þennan rétt. Hins vegar eigi hann ekki að þjóna ferðaþjónustunni sem atvinnugrein á kostnað landeigenda en ýmsir af fjölsóttum ferðamannstöðum eru í einkaeigu.

Almannarétturinn ekki nýtingaréttur

Örn sagði almannaréttinn ekki mega brjóta á einkaréttinum eða eignarétti landeigenda vegna ágangs ferðamanna, viðskiptavina ferðaþjónustuaðila. „Við erum fylgjandi þessum almannarétti og teljum hann sjálfsagðan hlut en við viljum hafa eitthvað um það að segja þegar menn eru farnir að gera út á landið í hópferðum og taka gjald fyrir, þá viljum við eitthvað hafa um það að segja. Manni virðist að Samtök ferðaþjónustu vilji eiginlega breyta þessari frjálsu för manna í nýtingarrétt. Að þeir hafi heimild til að nýta eigur okkar“, bætti Örn við.

Náttúrupassinn sem kosta á 1500 krónur og gilda til þriggja ára, á að skila fimm milljörðum í ríkissjóð og tekur gildi þann fyrsta september, verði frumvarpið samþykkt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×