Erlent

Náttúruöflin láta til sín taka vestanhafs

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Íbúar í Washington hreinsa snjó af þökum húsa sinna en sex manns hafa látist við snjómokstur.
Íbúar í Washington hreinsa snjó af þökum húsa sinna en sex manns hafa látist við snjómokstur. Nordicphotos/AFP
Talið er að nítján manns hafi látist á austurströnd Bandaríkjanna um helgina eftir næstmesta snjóbyl sem gengið hefur yfir New York frá upphafi mælinga árið 1869.

Tólf manns létust í bílslysum tengdum veðrinu og sex létust við snjómokstur. Ellefu fylki á austurströndinni hafa lýst yfir neyðarástandi.

Víða þurftu íbúar að grafa sig í gegnum snjó sem var meira en metri á dýpt en snjódýptin mældist mest í Glengary í Vestur-Virginíu. Þá voru um 200 þúsund manns án rafmagns um helgina.

Vegna hríðarbylsins þurfti að aflýsa um 7.000 flugferðum til og frá Bandaríkjunum en að minnsta kosti 615 flugferðum hefur verið aflýst í dag.

Sumir nutu þó veðursins því að fjöldi fólks kom saman við Times Square í miðborg New York aðfaranótt sunnudags og háði snjóstríð en engin bílaumferð var við torgið.

Chris Christie
Töluverð flóð gengu þá yfir New Jersey um helgina. Mest við strandbæi og náði vatnið mittishæð við helstu verslunargötur. Lögregluyfirvöld í New Jersey telja að þúsundir heimila séu rafmagnslausar. Flóðin náðu hámarki á laugardaginn líkt og snjóbylurinn en veðrið og flóðin gengu niður í gær.

Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey, sagði við fjölmiðla að betur hefði farið en á horfði. „Hvorki ég né bæjarstjórarnir teljum að það sé þörf á að flytja fólk á brott,“ sagði hann.

Þá sagði Christie landeigendur í New Jersey koma í veg fyrir uppbyggingu á flóðavörnum og minnti á þann gífurlega skaða sem fellibylurinn Sandy olli árið 2012.

Þá reið jarðskjálfti yfir Alaska í gærmorgun en hann mældist 7,1 stig. Skjálftinn átti upptök sín um 240 kílómetra suðvestur af Anchorage og fannst ágætlega í borginni. Tveir minni eftirskjálftar riðu yfir eftir þann fyrsta. Engar skemmdir urðu á eignum og enginn hlaut skaða af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×